Vindorkan skal líka metin Svavar Hávarðsson skrifar 30. janúar 2015 09:58 Hugmyndir eru uppi um vindorkugarð á Hafinu við Búrfell. Mynd/Landsvirkjun
Þvert á það sem haldið hefur verið fram falla vindorkuver, og aðrir óhefðbundnir orkukostir undir lög um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun). Það er því ekki á hendi Orkustofnunar að gefa út virkjunarleyfi fyrir þessa virkjunarkosti, heldur ganga þeir allir til verkefnisstjórnar rammaáætlunar þar sem þeir verða metnir og þeim raðað í nýtingar-, bið- eða verndarflokk. Þessi niðurstaða liggur fyrir samkvæmt heimildum Fréttablaðsins innan atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins. Ráðuneytið mun í framhaldinu gera Orkustofnun að senda verkefnisstjórninni vindorkukosti til umfjöllunar, en þeirra þekktastur eru hugmyndir Landsvirkjunar á Hafinu við Búrfell. Þar áætlar fyrirtækið að reisa allt að 80 vindmyllur, en fyrir standa tvær vindmyllur sem reistar voru í tilraunaskyni. Orkustofnun hefur til þessa haldið því fram að lög um rammaáætlun nái ekki yfir vindorkuver. Þetta kemur m.a. fram í minnisblaði sem Orkustofnun sendi ráðuneytinu í nóvember. Síðan hefur málið verið til skoðunar hjá lögfræðingum ráðuneytisins. Á kynningarfundi verkefnisstjórnarinnar í gær kom fram að hvorki er tími né peningar til að fjalla um alla þá orkukosti sem Orkustofnun hefur sent til verkefnisstjórnarinnar. Þeir eru þegar 50 en verða um 90 þegar allt er talið. Stefán Gíslason, formaður verkefnisstjórnarinnar, segir kostina sennilega verða innan við þrjátíu sem faghópar ná að skoða á þeim tíma sem er til stefnu, en aðeins rúmt ár er þangað til verkefnisstjórn skal leggja fram rökstuddar tillögur fyrir ráðherra. Þeir sem koma ekki til greina eru allt kostir sem þegar eru í verndar- og nýtingarflokki. Eins allir orkukostir sem Orkustofnun hefur mælt með að eigin frumkvæði. Fyrir viku lagði meirihluti atvinnuveganefndar til að fjórir virkjunarkostir yrðu fluttir úr biðflokki í nýtingarflokk. Alþingi logaði í illindum heilan þingdag á eftir. Spurður hverju tillagan breyti fyrir vinnuna sem fram undan er næsta árið, svarar Stefán. „Nákvæmlega engu.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira