Jónas og Þráinn Bertelsson í Tíma nornarinnar 9. desember 2010 13:00 Þráinn Bertelsson og Jónas Jónasson leika báðir í Tíma nornarinnar; Þráinn er sérfræðingur í fornum galdrastöfum en Jónas leikur Hannes, ritstjóra Síðdegisblaðsins. „
Það veit enginn af þessu, ekki konan mín né dætur. Ég var nú eiginlega að vona að ég yrði klipptur út,“ segir Jónas Jónasson, útvarpsmaður á Rás 1. Hann leikur Hannes, ritstjóra Síðdegisblaðsins sem Einar blaðamaður vinnur á, í sjónvarpsþáttaröðinni Tíma nornarinnar eftir Friðrik Þór Friðriksson. Þáttaröðin er byggð á samnefndri bók Árna Þórarinssonar, sem virðist hafa haft Jónas sérstaklega í huga þegar ljóst var að hún myndi rata í sjónvarpið, Hannes væri nefnilega reffilegur fjölmiðlarefur með djúpa og yfirvegaða rödd. Jónas var hins vegar ekkert allt of hrifinn af því að gera mikið úr sínu hlutverki og benti á að Þráinn Bertelsson, þingmaður, rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður, færi til að mynda með hlutverk sérfræðings í fornum galdrastöfum. „Ég veit eiginlega ekki af hverju hann Árni benti á mig, þetta er ekkert hlutverk, bara einhverjar tvær eða þrjár „replikkur“,“ segir Jónas og bætir því að hann hafi sagt já við þessari beiðni „í einhverjum bjánaskap“ eins og hann orðar það sjálfur. Jónas er hins vegar lærður leikari, lærði fræðin hjá Ævari Kvaran í fimm ár. Og var sjálfur kennari í tvö. Hann lék aðalhlutverkið í Herakles sem sett var upp í Tjarnarbíói undir stjórn Gísla Alfreðssonar og hefur leikstýrt og sett upp fjölda leiksýninga úti á landi og í útvarpi. - fgg
Mest lesið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Lífið samstarf Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira