Dr Spock tilbúnir að taka við af vöðvabúntunum 21. febrúar 2008 15:52 Óttar óttast ekki vöðvatröllin.
Liðsmenn Dr Spock eru sigurvissir fyrir úrslitakvöld forkeppni Eurovision á laugardaginn. „Við erum eiginlega komnir til Serbíu í huganum," segir Óttar Proppé, forsprakki sveitarinnar. Hann segir sveitina finna fyrir miklum meðbyr í Austur-Evrópu, og það sé allt hreinlega að verða vitlaust í Serbíu. Ástæðan mun vera sú að kvisast hefur út að þeir hyggist flytja lag sitt, „Hvar ertu nú?" á serbnesku hljóti þeir náð fyrir augum þjóðarinnar og komist í Eurovision. Lagið mun þá nefnast „Gde si ti sad" og fjalla um raunir serbneska sjómannsins, í stað þess íslenska. Spock-liðar hallast raunar að því að flytja lagið á serbnesku á úrslitakvöldinu á laugardag, en ætla þó að bíða með þá ákvörðun þangað til í kvöld, þegar þeir taka æfingu á sviðinu í Vetrargarðinum. „Við ætlum að tékka á því hvort þetta skili sér ekki rétt í gegnum íslenskar græjur," segir Óttar. Aðspurður hvort þeir óttist ekki samkeppnina frá vöðvatröllunum í Merzedes Club segir Óttar svo ekki vera. „Við erum með að minnsta kosti einn stóran meðlim, það er ákveðin vörn í honum," segir Óttar. Hann bætir við að þar að Sjónvarpið áskilji sér rétt til að skipta um lög og flytjendur eftir hentugleika, og þeir Spock-menn hafi því æft hin lögin til vonar og vara. Þeir færu því létt með að flytja Hey Hey Hey We Say Ho Ho Ho í Serbíu verði til þeirra leitað. Hafi einhver haldið að jafn karlmannlegt band og Dr-Spock óttaðist að verða „gay" kyntákn færu þeir til Serbíu er sá hinn sami á villigötum. Óttar segir þá hafa verið það lengi, og finnst það ekki tiltökumál. „Þetta er dálítið svipað og að vera á sjó, maður stígur ölduna." segir Óttar.
Mest lesið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Laufey á landinu Lífið Fleiri fréttir Kristmundur Axel tók við af Bubba Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Sjá meira