Æðstu embættismenn hafa flúið borgina 21. febrúar 2008 14:08 Ráðhús Reykjavíkur. Mynd/ Pjetur
Frá árinu 2002 hafa verið starfandi sex borgarstjórar, fjórir skipulagsstjórar, þrír sviðsstjórar framkvæmdasviðs (áður borgarverkfræðings og umhverfis- og tæknisviðs), fjórir borgarlögmenn og þrír fjármálastjórar hjá Reykjavíkurborg. Að auki hafa orðið sviðsstjóraskipti á velferðarsviði, menntasviði, leikskólasviði og umhverfissviði. Þetta kemur fram í fyrirspurn sem Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, lagði fram á fundi borgarráðs þann 14. febrúar síðastliðinn. Fyrirspurnin var lögð fram að því tilefni að skipulagsstjóri Reykjavíkur kaus að láta af störfum hjá Reykjavíkurborg. Telur Óskar að mikil hreyfing hafi verið meðal æðstu embættismanna borgarinnar á undanförnum árum og það sé verulegt áhyggjuefni. Óskar spyr hvað geri það að verkum að yfirmenn Reykjavíkurborgar staldri svo stutt við. Einnig hvað borgarstjóri hyggist gera til þess að koma á nauðsynlegum stöðugleika lykistarfsmanna hjá Reykjavíkurborg. Í svari borgarstjóra kemur fram að Reykjavíkurborg hafi ekki farið varhluta af því góðæri sem ríkt hafi á Íslandi að undanförnum árum og stjórnendur Reykjavíkurborgar hafi verið eftirsóttir í önnur störf. Stjórnkerfisbreytingar, bæði í tíð R-lista sem Framsóknarflokkur átti aðild að og í tíð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hafi einnig stuðlað að hreyfanleika á meðal æðstu stjórnenda. „Það ætti því að vera kappsmál borgarfulltrúa allra þeirra flokka sem hafa komið að stjórnun borgarinnar á undanförnum árum að stuðla að auknum vinnufriði og festu í stjórn borgarinnar," segir í svari Ólafs Friðriks Magnússonar borgarstjóra.
Mest lesið Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira