Lífið

Take That meðal sigurvegara á Brit-hátíðinni

Brit-verðlaunin voru afhent með pompi og prakt í London í gærkvöldi. Það voru hljómsveitirnar Take That, Artic Monkeys og Foo Fighters sem teljast sigurvegarnir að þessu sinni en hver sveitanna hlaut tvenn verðlaun. 

Þá hlaut Sir Paul McCartney heiðursverðlaunin að þessu sinni fyrir framlag sitt til dægurtónlistar og Kylie Minogue var kjörin besta alþjóðlega söngkonan. Kanye West var kjörinn besti alþjóðlegi söngvarinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.