Innlent

UMFÍ íhugar að höfða mál

Björn B. Jónsson, formaður Ungmennafélags Íslands, segir það óréttlátt og ósanngjarnt að aðstandendur landsmótanna séu skikkaðir til að greiða löggæslukostnað vegna mótanna. UMFÍ íhugar að höfða mál vegna greiðslu löggæslukostnaðar á unglingalandsmóti. Landsmót Ungmennafélags Íslands og Unglingalandsmótið, sem haldin verða í Skagafirði í næsta mánuði, eru í uppnámi eftir að dómsmálaráðherra úrskurðaði að sýslumaðurinn á Sauðárkróki hefði heimild til að innheima tvær og hálfa milljónir króna í sérstakan löggæslukostnað vegna mótanna. Ráðherra úrskurðaði um málið í kjölfar kæru UMFÍ vegna 500 þúsund króna löggæslukostnaðar á Unglingalandsmóti UMFÍ á Ísafirði um verslunarmannahelgina í fyrra, en UMFÍ íhugar að höfða mál vegna þess. Aðstandendur Landsmótsins í sumar segja ljóst að ekki sitji allir við sama borð. Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, segir ekki koma til greina að greiða kostnaðinn, en því miður sé verið að neyða mótshaldara til að standa straum af honum. Hann segir ekkert réttlæti vera í þessu að til séu mörg fordæmi fyrir því að mótshaldarar hafi ekki þurft að greiða slíkan kostnað. Hann bendir á að árið 2007 verði landsmótið haldið í Kópavogi og á Akureyri árið 2009. Hann telur ljóst að ekki þurfi að greiða löggæslukostnað á þeim stöðum og spyr af hverju þeir þurfi að gera það á Sauðárkróki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×