Gríðarleg uppsveifla hjá QPR 4. júlí 2008 15:30 Flavio Briatore og félagar ætla sér stóra hluti með QPR NordcPhotos/GettyImages
Enska b-deildarfélagið QPR er heldur betur í sókn þessa dagana. Nýir eigendur félagsins ætla sér að koma þessum fornfræga klúbbi í efstu deild fyrir árið 2010. Eigendur QPR eru þeir Flavio Briatore, Bernie Ecclestone og Lakshimi Mittal, en þeir Briatore og Ecclestone eru þekktari fyrir afskipti sín af Formúlu 1 en knattspyrnu. Þremenningarnir eru hinsvegar mjög efnaðir og hafa undanfarið verið duglegir við að afla styrktaraðila fyrir félagið. Í gær gerði félagið 7 milljón punda samning við fyrirtækið Gulf Air í Barein og mun nafn þess prýða búninga Rangers á næstu leiktíð í b-deildinni. QPR fær eina milljón punda fyrir fyrsta árið, en ríkulegan bónus ef liðinu tekst að komast upp um deild á árunum tveimur þar á eftir. Þetta er langstærsti samningur þessarar tegundar sem gerður hefur verið í ensku b-deildinni og til gamans má geta að fyrir fimm árum hljóðaði sambærilegur styrktarsamningur QPR við fyrirtækið JD Sports upp á 37,000 pund. Þegar er búið að verja umtalsverðum fjárhæðum í endurbætur á Loftus Road, heimavelli liðsins síðan árið 1917. Fyrir fjórum mánuðum gerði QPR samning við ítalska íþróttavöruframleiðandann Lotto fyrir 20 milljónir punda. Það er því ljóst að mikill metnaður er í herbúðum félagsins og mikið má vera ef það vinnur sér ekki sæti í efstu deild á ný. Liðið var síðast í efstu deild leiktíðina 1995-96, en hefur mátt muna fífil sinn fegurri síðan.
Enski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Sjá meira