Vegagerðin hugsar málið 29. október 2005 04:45 Vegamálastjóri - Jón Rögnvaldsson
Um miðja næstu viku er fyrirhugaður fundur lögmanns Reykjavíkurborgar og lögmanna olíufélaganna um skaðabótakröfu borgarinnar vegna ólöglegs verðsamráðs félaganna. Að sögn Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, lögmanns borgarinnar, varð ekki af fyrirhuguðum fundahöldum í vikunni sem er að líða. Borgin krefur félögin þrjú, Skeljungs, Esso og Olís, eða eignarhaldsfélög þeirra um 150 milljón krónur í bætur. Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri segir hugsanlega skaðabótakröfu Vegagerðarinnar vegna samráðsins lítillega hafa verið skoðaða, en Vegagerðin bíði enn og sjái til hvernig mál þróast hjá öðrum. "En það hafa ekki verið teknar um þetta neinar ákvarðanir. Málið er mjög flókið. Annars vegar er bein notkun okkar og hins vegar náttúrlega notkun verktaka sem fyrir okkur vinna," segir hann og telur að mismunandi kunni að vera eftir stofnunum hvort þær sæki bætur sjálfar, eða hvort það verði gert undir hatti ráðuneytis. Í skýrslu samkeppnisyfirvalda um verðsamráð olíufélaganna er tekið fremur skýrt dæmi um samráð varðandi verð á White Spritti til Vegagerðarinnar. "Já, við kaupum það líka, en það er bara einn dropinn í hafið," segir vegamálastjóri. Geir H. Haarde, þá fjármálaráðherra, sagði í svari við fyrirspurn á Alþingi í febrúar að lögfræðingar ríkisins myndu meta réttarstöðu þess vegna samráðsins. Ekki náðist í fulltrúa ráðuneytisins síðdegis í gær.
Innlent Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Sjá meira