Innlent

Tillaga féll ekki að deiliskipulagi

Hugmyndum um smíði 3.800 fermetra verslunarmiðstöðvar á horni Glerárgötu og Tryggvabrautar á Akureyri hefur verið hafnað. Það var fasteignafélagið Smáragarður sem kom fram með hugmyndina en það ásamt fjárfestingafélag KEA á lóðina.



Eftir því sem fram kemur á fréttavefnum nordurlandid.is segir Leifur Þorsteinsson, verkefnastjóri byggingareftirlits Akureyrarbæjar, hugmyndina ekki hafa fallið að deiliskipulagshugmyndum bæjarins en hann vildi þó ekki tjá sig nánar um það að svo stöddu hvað það væri sem bærinn setti fyrir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×