Hlynur til Hollands 10. maí 2005 00:01
Lið Snæfells í Intersportdeildinni í körfuknattleik hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku, því Hlynur Bæringsson er á leið til Hollands að leika með liði þar í landi. Hlynur Bæringsson, sem hefur verið burðarás í liði Snæfells undanfarin ár, hefur samþykkt tilboð frá Woonaris í Hollandi. "Ég fer út í haust. Þangað til mun ég kappkosta við að kynnast sérhollenskri matarmenningu eins og til dæmis pítsu og hamborgurum," sagði Hlynur hlæjandi í samtali við Fréttablaðið. "Þetta var bara gott tækifæri til að reyna eitthvað nýtt enda er ég búinn að spila í úrvalsdeildinni síðan ég var 15 ára. Aðalatriðið var að komast í lið þar sem ég gæti fengið spilunartíma og ég tel mig hafa alla burði til þess hjá Woonaris."Hlynur verður landsliðinu til fulltingis í sumar en heldur utan í ágúst. "Tímabilið er á svipuðum tíma og hér en ég er ákveðinn í að nýta sumarið til fínpússa viss atriði. Planið er að fara út í mínu allra besta formi og mun ég haga vinnunni í sumar þannig að ég geti æft sem mest."Baráttumaðurinn mikli sagði að Brandon Woudstra, fyrrum leikmaður Njarðvíkur sem nú leikur með Woonaris, hafi borið liðinu vel söguna. "Ég hef leitað töluvert til hans og fengið upplýsingar um liðið og ýmislegt tengt því."Hlynur sagði að erfitt væri að segja skilið við Snæfell. "Stjórnin, samherjarnir og allt fólkið í Stykkishólmi er búið að reynast mér mjög vel og þrátt fyrir að maður verði á erlendri grundu mun hugurinn oft reika hingað á Snæfellsnesið enda er ég uppalinn Grundfirðingur og mun alltaf eiga góða minningar héðan," sagði Hlynur með þakklætisbrag.Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur Woonaris einnig gert tilboð í Sigurð Þorvaldsson, samherja Hlyns hjá Snæfelli, en hann var valinn besti leikmaður tímabilsins í vetur. Sigurður hafði ekki gert upp hug sinn þegar Fréttablaðið fór í prentun en hafði þetta um málið að segja: "Það getur vel verið að ég slái til og spili með Woonaris næsta vetur en til þess verða a.m.k. tveir bakverðir liðsins að vera með samvaxnar augabrúnir," sagði Sigurður hress og kátur í samtali við Fréttablaðið.
Körfubolti Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Sjá meira