Skítug vinnubrögð Chelsea? 29. október 2004 00:01
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er nú harðlega gagnrýnt í Englandi vegna meðferðar félagsins á rúmenska landsliðsfyrirliðanum, Adrian Mutu sem leystur var undan samningi við félagið á föstudagsmorgun. Mutu á nú yfir höfði sér leikbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi eins og frægt er orðið en prófið var ekki framkvæmt af handahófi eins og algengast er heldur var rúmenski sóknarmaðurinn skikkaður í það af Chelsea eftir að grunsemdir vöknuðu hjá félaginu um að leikmaðurinn hefði óhreint mjöl í pokahorninu. Chelsea greiddi ítalska liðinu Parma 15,8 milljónir punda fyrir Mutu í fyrra sem félagið virðist nú skyndilega reiðubúið að afskrifa. Í yfirlýsingu frá Chelsea á fimmtudag sagði að það væri stefna hjá félaginu að misnotkun lyfja sé ekki liðin og verði hvaða leikmaður sem uppvís verði um slíkt athæfi látinn tæma skápinn sinn á Stamford Bridge. Gordon Taylor, framkvæmdastjóri ensku leikmannasamtakanna sakar Chelsea um að hafa misnotað sér tækifæri sem þarna gafst til að losa sig við leikmanninn en Mutu var ekki í náðinni hjá Jose Mourinho knattspyrnustjóra félagsins. Þá eru Netiðlar sem fjalla um knattspyrnu á Englandi flestir með forsíðuumfjöllun vegna málsins og þar er m.a. gengið það langt að segja að aðrir leikmenn Chelsea, rótgrónir menn eins og Frank Lampard og John Trery hefðu fengið öðruvísi meðferð hjá félaginu en Mutu þrátt fyrir yfirlýsta lyfjastefnu Chelsea. "Þetta er ekki stefna sem við í leikmannasamtökunum erum hrifnir af. Skylda Chelsea er að hugsa um sína leikmenn. Við viljum að félög sýni áhuga á andlegri og samfélagslegri velferð starfsmanna sinna. Það er fjöldi dæma um að félög kjósi frekar að hjálpa leikmönnum sínum sem svipað er ástatt um frekar en að láta þá fara." sagði Taylor í viðtali við BBC á föstudag. Mourinho gefur lítið fyrir skoðanir Taylor. "Taylor fær borgað fyrir að sinna starfi sínu vel en hann hefur ekki hundsvit á því hvað gengur á hér hjá Chelsea." sagði hinn roggni Mourinho við BBC. Talið er að Mutu fái 6 mánaða bann og er ekki útséð með framtíð leikmannsins sem knattspyrnumaður en þekkt er að félög vilja ekki láta bendla sig við leikmann sem hefur látið grípa sig fyrir kókaínneyslu. Ástralski markvörðurinn Mark Bosnich var rekinn frá Chelsea í fyrra eftir að hafa fallið á lyfjaprófi vegna kókaínneyslu eins og Mutu og hefur hann ekki ennþá fundið sér félag til að leika með.
Enski boltinn Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Golf Fleiri fréttir Titilbaráttunni formlega lokið í kvöld? Lars Lagerbäck veit hvað er stærsta vandamál sænska liðsins Þjálfari Íraks um Mbappé: Bað um að fá að spila með þrjá markverði Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Sakar þýska landsliðið um óheiðarleika Messi er ekki búinn að ná Mörtu Goðsögnin fær að keppa á Wimbledon-mótinu Einum mánuði yngri en Eiður Smári Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Kom pabba sínum algjörlega á óvart á átjándu holunni á US Open Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Maður dagsins: Fyrirliði Orra úr aðhlátursefni í hetju Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Kóngafólkið dansaði í klefa Curacao Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Lést uppi á hótelherbergi í draumaferð sinni á HM Kristín setti heimsmet og vann brons á HM: „Stolt af sjálfri mér“ Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Bauluðu á verðandi US Open meistara Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Dagskráin í dag: KRÍA og Besta deild kvenna „Loksins næ ég að skora þrennu“ „Vorum litlir í okkur á stóra sviðinu“ „Mikil vinna sem liggur að baki svona sigri“ Sjá meira