Sigmundur Ernir í stað Páls 20. júlí 2005 00:01
Breytingar urðu hjá fjölmiðlafyrirtækinu 365 í gær þegar Páll Magnússon lét af starfi sjónvarps- og fréttastjóra Stöðvar 2. Sigmundur Ernir Rúnarsson lét af störfum sem fréttaritstjóri Fréttablaðsins og tók í gær við stöðu Páls sem fréttastjóri Stöðvar 2 en mun einnig starfa sem ritstjóri nýrrar fréttastöðvar á vegum 365 sem hefur göngu sína í haust. "Ástæðan er einföld. Ég var ósammála þeirri grundvallarstefnu sem fyrirtækinu hafði verið mörkuð," segir Páll um ástæðu uppsagnar hans en vill ekki segja nánar til um í hverju sá ágreiningur fólst. "Þessi ágreiningur er þess eðlis að ég vil ekki tjá mig um hann. Þó get ég sagt það að þetta er faglegur og heiðarlegur ágreiningur en ekki persónulegur. Það eru engin illindi á milli einstaklinga og ég skil sáttur við fyrirtækið. Ég gerði eigendum og stjórnendum grein fyrir sjónarmiðum mínum þar að lútandi um og eftir síðustu helgi. Ég er þannig gerður að ég vil frekar stíga frá borði en að vera sigla með skipi á stað sem mig langar ekki að fara á," segir Páll. Páll segist ætla að sækja um stöðu útvarpsstjóra en frestur til að sækja um rennur út í dag. "Ég hef ekki sótt um en ætla að gera það," segir hann. "Ég vil engu bæta við útskýringar Páls um hvers vegna hann sagði störfum sínum lausum," segir Gunnar Smári Egilsson, framkvæmdastjóri 365. Sigmundur Ernir segist kveðja Fréttablaðið með söknuði og hóf í gær störf sem fréttastjóri Stöðvar 2. "Ég hlakka mjög til þessa nýja verkefnis. Ég lít á það sem mikla áskorun að auka og bæta fréttaþjónustu 365-ljósvakamiðla," sagði Sigmundur Ernir. Róbert Marshall hefur verið ráðinn framvæmdalegur forstöðumaður nýs fréttasviðs 365 og til að stýra undirbúningi að hinni nýju fréttastöð sem verður síðar undir hans stjórn. Róbert mun láta af störfum sem formaður Blaðamannafélags Íslands í kjölfar hinna nýju starfa.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira