Miðlægt umferðarljósastýrikerfi tekið í notkun 26. september 2007 15:35 MYND/Pjetur
Reykjavíkurborg hefur tekið í notkun miðlægt stýrikerfi fyrir fjölförnustu gatnamótin í borginni. Nýja kerfið aðlagar umferðarljósin að umferðinni á hverjum tíma, lengir tíma ljósa þegar álagið er mest og lágmarkar biðtíma vegfarenda í gatnaerfinu. 36 gatnamót af þeim 116 gatnamótum sem stýrt er með umferðarljósum í Reykjavík eru hluti nýja kerfisins í þessum fyrsta áfanga, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. „Miðlæg stýring umferðarljósa byggir á samskiptaneti milli stjórnkassa og stjórntölvu og umfangsmikilli söfnun umferðarupplýsinga. Út frá þessum upplýsingum reiknar stjórntölvan út flæði umferðarinnar á öllu svæðinu hverju sinni, ákvarðar hvaða stýring er við hæfi og sendir boð í stjórnkassana í gegnum samskiptanetið," segir í tilkynningunni. „Miðlæg stýring umferðarljósa er sameiginlegt verkefni Framkvæmdasviðs Reykjavíkur og Vegagerðarinnar, en í ársbyrjun 2006 var samið við þýska fyrirtækið Siemens AG um þennan fyrsta áfanga verkefnisins. Honum lýkur nú á haustdögum með formlegri afhendingu kerfisins." Umferðarljósin eru samtengd með ljósleiðarakerfi og mun það vera í fyrsta skipti sem þessi háttur er hafður á í heiminum. Aðferðin sameinar kosti öryggis og mikillar flutningsgetu og segir í tilkynningunni frá borginni að líklegt megi telja að tæknin verði notuð í fleiri borgum í framtíðinni.
Mest lesið Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Innlent Haraldur Briem er látinn Innlent Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Innlent Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Innlent Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Hundrað eldislaxar í Haukadalsá, ásakanir um samráð og blómlegt í Hveragerði Saka Storytel um að forgangsraða eigin efni á kostnað annarra Ekki tilkynnt um stórt gat á sjókví í nokkurn tíma þrátt fyrir eftirlit Taldi hundrað eldislaxa í neðri hluta Haukadalsár Tónlistarmaður taldi handtökuna ólögmæta en fór tómhentur heim Krefjast þess að ráðherra dragi ummæli sín til baka Samkeppniseftirlitið rannsakar Storytel Fá tímabundna undanþágu frá viðskiptaþvingunum Í samtali við norsku kafarana hvort þeir komi aftur Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Eldislaxar í Haukadalsá, Gnoðarvogur og samgöngur á Vesturlandi Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Snýr aftur sem bæjarstjóri eftir árslangt veikindaleyfi Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Helgi Vilberg Hermannsson er látinn Haraldur Briem er látinn Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Vara við eldislax í Haukadalsá Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði