Gott uppgjör hjá Actavis 12. maí 2006 11:20
Actavis skilaði góðu uppgjöri á fyrsta ársfjórðungi sem var talsvert yfir væntingum en hagnaður eftir skatta til hluthafa Actavis nam 31,3 m.EUR en spá KB Banka var upp á 25 m.EUR og spár annarra fjármálafyrirtækja hljóðuðu upp á 19-20 m.EUR. Rekstrartekjur félagsins námu 341,9 m.EUR (spá 325 m.EUR) og EBITDA framlegðarhlutfallið var 21,2% (spá 19%). EBITDA á tímabilinu nam 72,5 m.EUR (spá 61,8 m.EUR). Þetta kemur fram í tilkynningu frá KB Banka. Hærri tekjur og framlegðarhlutfall en spáð skýra nær alfarið betri afkomu. Afskriftir námu 22,5 m.EUR (spá 20,7 m.EUR) og voru þar af 12 m.EUR afskriftir á eignfærðum þróunarkostnaði og á óefnislegum eignum. Fjármagnsgjöld námu nettó 10 m.EUR (spá 9 m.EUR). Tekjuskattshlutfallið nam 20,4% á tímabilinu en afkomuspáin gerði ráð fyrir 22%. Ekki var um söluhagnað eða neina óvenjulega liði að ræða í uppgjörinu sem skýra góða afkomu. Innri vöxtur tekna á milli ára var 23% en nokkru lægri eða 20% ef tekin eru burt áhrif breytinga á gengiskrossum á tímabilinu. Hátt EBITDA hlutfall á tímabilinu skýrist að miklu leiti vegna góðs árangur Amide í Bandaríkjunum en Actavis keypti það félag á miðju síðasta ári. EBITDA framlegð Amide er mun hærri en innan annarra rekstrareininga samstæðunnar. Þá markaðsetti Actavis 87 ný lyf á tímabilinu og þróun á helstu mörkuðum félagsins var í samræmi við eða yfir væntingum stjórnenda. Verkefnastaðan er mjög góð að sögn stjórnenda og eru sem stendur 44 lyf í skráningu. Athygli vekur að handbært fé frá rekstri var neikvætt um 4,7 m.EUR á tímabilinu þrátt fyrir að veltufé frá rekstri væri jákvætt um 52,1 m.EUR. Helstu ástæður þess eru að viðskiptakröfur jukust verulega sem er árstíðabundið, fyrirframgreiðslur á tryggingum og birgðir jukust vegna undirbúnings á sölu á nýjum lyfjum. Stjórnendur Actavis halda við áætlun sína um að tekjur muni nema 1,36 mö.EUR á öllu árinu og að EBITDA hlutfallið verði um eða rétt yfir 20%. Þá eru þeir bjartsýnir á að kaup á króatíska samheitalyfjafyrirtækinu PLIVA geti gengið í gegn. Ekki mörg lyfjafyrirtæki hafi bolmagn til að framkvæma kaupin og aðrir mögulegir kaupendur eins og fjárfestingasjóðir geti ekki greitt jafn hátt verð og Actavis hefur óformlega boðið þar sem að fjárfestingasjóðirnir eðli máls samkvæmt geta ekki náð fram samlegðaráhrifum eins og ef kaupandinn er lyfjafyrirtæki.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira