Næringarfræðingur hvetur landsmenn til að hætta að leita í gervisykurinn 17. ágúst 2017 22:51 Næringarfræðingurinn hvetur landsmenn frekar til þess að neyta hvíta sykursins sjaldnar.
Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur telur að við séum komin á ranga braut að sækja svona mikið í gervisætu og raun ber vitni. Geir ræddi við Reykjavík síðdegis um nýlegar rannsóknir um gervisætu sem leiða í ljós að gervisæta geti „gabbað líkamann.“ Í viðtalinu lýsti Gísli áhrifum gervisætunnar á líkamann. Hann sagði að líkaminn bregðist ekki rétt við þegar við fáum sætuefni í munninn og engar hitaeiningar í kjölfarið og talar hann um brenglun á boðskiptum. Hann segir að líkaminn geti tekið upp á því að keyra af stað svengd og jafnvel insúlín. „Það vantar endapunktinn í þetta sætubragð,“ segir Geir.Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur.Vísir/ValliGeir segir að landsmenn neyti of mikils magns af sætuefnum og horfir hann þá sérstaklega til gosdrykkja með gervisætu því það sé hægt að innbyrða svo mikið af efninu í formi gosdrykkja. Næringarfræðingurinn hvetur almenning til að hætta að leita, í sífellu, í gervisætuna og brýnir þess í stað fyrir fólki að njóta hvíta sykursins meira og sjaldnar. „Bökum hnallþórur með ömmu,“ stingur Geir upp á sem mælist til þess að fólk hætti að leita að „hollum uppskriftum“ með sætuefnum „og baka á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum því þetta sé svo hollt,“ segir Geir. Þá segir hann auk þess að það sé vænlegri kostur að neyta alvöru kóladrykkjar: „Fáum okkur bara alvöru kalda kók, sjaldan og njótum þess,“ segir Geir sem vonast eftir frekari rannsóknum á gervisætu.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira