Tíu ár frá trylltum fögnuði Adebayor gegn Arsenal Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. september 2019 11:30 Adebayor hefur sennilega aldrei hlaupið jafn hratt og þegar hann fagnaði gegn Arsenal. vísir/getty
Í dag er eitt frægasta fagn fótboltasögunnar tíu ára gamalt. Emmanuel Adebayor á heiðurinn að því. Þann 12. september 2009 mættust Manchester City og Arsenal á Etihad í ensku úrvalsdeildinni. Þetta var fyrsti leikur Adebayors gegn Arsenal eftir að City keypti hann frá Skyttunum fyrir 25,5 milljónir punda. Stuðningsmenn Arsenal, sem gerðu sér ferð frá London til Manchester, létu Adebayor heyra það á meðan leik stóð. Á 80. mínútu skoraði Adebayor með skalla og kom City í 3-1. Þetta var fjórða mark hans í jafn mörgum deildarleikjum fyrir City. Eftir markið tók Tógómaðurinn á sprett og hljóp yfir endilangan völlinn í átt að stuðningsmönnum Arsenal. Adebayor hefur sennilega aldrei hlaupið jafn hratt á ævinni. Hann renndi sér á hnén og fagnaði fyrir framan stuðningsmenn Arsenal og ögraði þeim.10 years ago today, Emmanuel Adebayor ran the length of the pitch to celebrate against his former club Arsenal's fans pic.twitter.com/tmXBnWAQ1P — B/R Football (@brfootball) September 12, 2019 Stuðningsmenn Arsenal voru lítt hrifnir af fögnuði Adebayors og Mark Clattenburg, dómari leiksins, gaf honum gula spjaldið. Adebayor baðst seinna afsökunar á fagnaðarlátunum. Hann fékk hins vegar þriggja leikja bann fyrir að sparka í Robin van Persie, leikmann Arsenal, í leiknum. Adebayor skoraði 14 deildarmörk fyrir City tímabilið 2009-10. Alls gerði hann 19 mörk í 45 leikjum fyrir City.
Enski boltinn Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Fleiri fréttir Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Sjá meira