Skyndi­sóknir Totten­ham af­greiddu Arsenal

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mennirnir sem afgreiddu erkifjendurna í dag.
Mennirnir sem afgreiddu erkifjendurna í dag. Glyn Kirk/Getty

Tottenham er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á grönnum sínum í Arsenal er liðin mættust í Norður-Lundúnarslagnum á heimavelli Tottenham í dag.

Arsenal var mikið meira með boltann en hvítklæddir heimamenn vörðust fimlega. Þeir treystu svo á skyndisóknir og fyrsta mark leiksins kom einmitt úr einni slíkri.

Á þrettándu mínnútu geystust þeir upp völlinn, Harry Kane kom boltanum á Heung-Min Son sem skoraði með stórglæsilegu skoti fyrir utan teig. 1-0 og þannig virtust leikar ætla að standa í hálfleik.

Það var hins vegar í uppbótartíma fyrri hálfleiks er Tottenham tvöfaldaði forystuna. Eftir aðra skyndisókn skiptu Son og Kane á hlutverkum; Son kom boltanum á Kane sem þrumaði boltanum í slá og inn.

2-0 í hálfleik og leikmyndin í síðari hálfleik var svipuð. Arsenal var meira með boltann en tókst illa að skapa sér góð færi. Lokatölur urðu 2-0 og fimmti leikurinn af síðustu sjö í ensku úrvalsdeildinni sem Arsenal nær ekki að skora.

Tottenham er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 24 stig en Liverpool getur jafnað þá að stigum með sigri á Úlfunum síðar í dag. Arsenal er hins vegar í fimmtánda sætinu með þrettán stig og einungis fjóra sigra í fyrstu ellefu leikjunum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira