Markalaust í leiðinlegum Lundúnarslag

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Leiðindi á Brúnni.
Leiðindi á Brúnni. vísir/Getty

Lærisveinar Jose Mourinho í Tottenham lyftu sér í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með því að gera jafntefli við Chelsea á Stamford Bridge leikvangnum í Lundúnum í dag.

Um var að ræða toppbaráttuslag en bæði lið hafa verið að gera góða hluti upp á síðkastið.

Þeir sem bjuggust við fjörugum leik urðu fyrir miklum vonbrigðum því leikurinn var afar tíðindalítill og á löngum köflum bar leikurinn þess merki að bæði lið væru sátt með eitt stig úr leiknum.

Fór að lokum svo að ekkert mark var skorað og markalaust jafntefli því niðurstaðan í þessum nágrannaslag.

Tottenham hefur nú 21 stig líkt og Liverpool en Lundúnarliðið trónir á toppnum með talsvert betri markatölu. Chelsea í 3.sæti með 19 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira