Villa skellti Arsenal á Emirates

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Watkins fagnar öðru marki sínu í kvöld.
Watkins fagnar öðru marki sínu í kvöld. Alastair Grant - Pool/Getty Images

Aston Villa gerði sér lítið fyrir og skellti heitum Arsenal mönnum á Emirates í kvöld. Lokatölur urðu 3-0 sigur Villa.

Það voru liðnar rétt rúmlega 50 sekúndur er Aston Villa kom boltanum í netið. John McGinn skoraði en eftir skoðun í VARsjánni var dæmd rangstæða.

Á 25. mínútu skoruðu gestirnir á ný og það mark fékk að standa. Eftir flotta spilamennsku og góða fyrirgjöf Matt Targett varð Bukayo Saka fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.

Þannig stóðu leikar í hálfleik en á 72. mínútu tvöfaldaði Ollie Watkins forystuna. Ollie var ekki hættur því einungis þremur mínútum síðar bætti hann við þriðja markinu og lokatölur 3-0.

Arsenal skellt niður á jörðina eftir sigurinn gegn Man. United um síðustu helgi en liðið er í ellefta sæti deildarinnar með tólf stig. Villa er í sjötta sætinu með fimmtán stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira