Íslenski boltinn

Verið algjör farsi en við gerum okkur klárar í þetta stríð

Sindri Sverrisson skrifar
Ingunn Haraldsdóttir fyrirliði KR segir liðið ætla að reyna allt til að halda sér í efstu deild.
Ingunn Haraldsdóttir fyrirliði KR segir liðið ætla að reyna allt til að halda sér í efstu deild. VÍSIR/VILHELM

Af íslensku íþróttafólki hefur kvennalið KR í fótbolta líklega orðið hvað verst fyrir barðinu á kórónuveirufaraldrinum. Nú þarf liðið að spila fjóra leiki á tíu dögum.

Leikmenn KR hafa í þrígang þurft að fara í sóttkví á árinu, með tilheyrandi hléum frá liðsæfingum, hafa leikið þétt þegar þær hafa mátt spila og eiga enn tvo leiki til góða á flest önnur lið í Pepsi Max-deildinni. Liðið hefur svo verið í æfingabanni síðasta hálfa mánuðinn líkt og önnur lið á höfuðborgarsvæðinu.

Á þriðjudaginn máttu KR-konur loks mæta saman til æfinga að nýju, en þó með takmörkunum. Reglur voru svo skýrðar í gær og má senda fótbolta á milli manna, en virða þarf tveggja metra reglu.

Fallnar ef mótið hefði verið blásið af

Keppni í Pepsi Max-deildinni hefst að nýju 8. nóvember en KR tekur þá á móti Þór/KA, sennilega á gervigrasvelli sínum þar sem liðið æfir þessa dagana. KR á einnig eftir leiki við Breiðablik, ÍBV og loks Fylki 18. nóvember, svo spilað verður þétt:

„Við erum auðvitað spenntar fyrir því að klára mótið þar sem að við værum fallnar ef að mótinu yrði slaufað. Það er ekkert annað í stöðunni fyrir okkur en að vilja klára þessa fjóra leiki,“ segir Ingunn Haraldsdóttir, fyrirliði KR.

KR var ekki spáð falli úr deildinni en liðið er á botninum með 10 stig, sjö stigum frá næsta örugga sæti. Liðið gæti því vel þurft að vinna þrjá af þeim fjórum leikjum sem það á eftir, til að geta haldið sér uppi.

KR-ingar eru með sterka leikmenn í sínum röðum en hafa átt erfitt uppdráttar í sumar, meðal annars vegna ítrekaðra hléa í sóttkví.Vísir/Hulda Margrét

Ingunn tekur undir að KR-liðið sé sett í erfiða stöðu með því að þurfa að spila fjóra leiki á svo skömmum tíma:

„Það er svo sem ekkert nýtt. Það hefur verið þannig í allt sumar. Við verðum bara að setja hausinn undir okkur og gera okkur klárar í þetta stríð. Við höfum spilað áður svona þétt og vitum hvað við erum að fara út í,“ segir Ingunn. 

Kunnum að æfa án bolta

Hún bendir á að bann við æfingum liða síðasta hálfa mánuðinn sé eitthvað sem KR-ingar séu farnir að þekkja vel eftir alla sína veru í sóttkví.

„Við erum kannski það lið sem að þekkir það best hvernig á að æfa þegar staðan er svona. Við getum sagst hafa svolítið forskot þarna. Við kunnum að æfa án bolta og verðum að taka það með okkur núna,“ en ekki er annað hægt en að velta því fyrir sér hver staða KR væri ef liðið hefði ekki lent svo oft í sóttkví á leiktíðinni:

„Ég vil nú ekki vera að detta í einhverja sjálfsvorkunn en þetta hefur vissulega verið mjög erfitt tímabil fyrir alla, og við höfum lent hvað verst í þessu. Þetta hefur verið algjör farsi, að sama liðið fari þrisvar í sóttkví.

Það að vera í fallsæti er ekki það sem við ætluðum okkur í vor en svona er staðan. Við eigum enn 12 stig eftir í pottinum og það er vel gerlegt fyrir okkur að klára þetta með stæl.“


Tengdar fréttir

„Ekki sanngjarnara að klára mótið en að blása það af“

„Þetta er farið að verða eitthvað annað en mótið sem við byrjuðum á,“ segir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis Reykjavík. Hann dregur í efa að sanngjarnara sé að klára Íslandsmótið í fótbolta en að blása það af núna.

Hafa áhyggjur af KR og segja liðið andlaust

KR er á botni Pepsi Max-deildar kvenna en á enn eftir að leika þriðjung sinna leikja, þegar 19 dagar eru til stefnu, þar sem liðið hefur í þrígang farið í sóttkví í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×