Aston Villa með fullt hús stiga eftir að hafa niður­lægt Eng­lands­meistara Liver­pool

Aston Villa fór hamförum í leik dagsins gegn Englandsmeisturum Liverpool.
Aston Villa fór hamförum í leik dagsins gegn Englandsmeisturum Liverpool. Peter Powell/Getty Images

Undarlegasta helgi síðari ára í enska boltanum fékk viðeigandi endi er Aston Villa niðurlægði Englandsmeistara Liverpool á heimavelli í lokaleik dagsins. Lokatölur á Villa Park 7-2 heimamönnum í vil.

Ollie Watkins hóf veisluna strax á 4. mínútu er hann kom Aston Villa yfir. Hann bætti við sínu öðru marki á 22. mínútu en Mohamed Salah minnkaði muninn á 33. mínútu. Aðeins tvemur mínútum eftir það var staðan orðin 3-1 þökk sé marki John McGinn og Ollie fullkomnaði þrennu sína á 39. mínútu.

Staðan því 4-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik.

Sýning heimamanna hélt áfram í þeim síðari en Ross Barkley - lánsmaður frá Chelsea - bætti við fimmta marki Villa þegar tíu mínútur voru liðnar. Mo Salah minnkaði muninn í 5-2 fimm mínútum eftir það. 

Það var hins vegar Jack Grealish sem átti loka orðið en hann skoraði tvívegis og tryggði Aston Villa ótrúlegan 7-2 sigur. 

Aston Villa er því með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir í ensku úrvalsdeildinni á meðan Liverpool var að tapa sínum fyrsta leik. Liðið var án Sadio Mané, Thiago og Alisson í dag. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira