Lífið

Rauðhærðir styðja Friðrik

Rautt eða hvað?
Friðrik Ómar er óneitanlega rauðbirkinn.
Rautt eða hvað? Friðrik Ómar er óneitanlega rauðbirkinn.

„Mér finnst ég aldrei hafa náð því að vera rauðhærður, er bara með þetta víkingablóð og held að ég sé reyndar ljós yfirlitum,“ segir Friðrik Ómar Hjörleifsson. Því hefur verið fleygt að annað árið í röð sé fulltrúi Íslands rauðbirkinn eða jafnvel rauðhærður. Af ýmsum eldri myndum má glöggt sjá að það glittir í rautt hjá Eurovision-faranum og Esther Ösp Gunnarsdóttir, vefstjóri raudhausa.com, hvetur Eurovision-farann til að leyfa rauða litnum að njóta sín ef hann sé til staðar.

 

Hundrað prósent rautt Rauða ljónið stóð sig eins og hetja í Finnlandi í fyrra en varð að lúta í lægra haldi fyrir austur-evrópsku Eurovision-mafíunni.

Raudhausar.com studdu dyggilega við bakið á Eiríki Haukssyni í fyrra og voru með öfluga kosningavél á bak við hann en Eiríkur var með mikið rautt hár þegar hann söng Valentines Lost í fyrra. „Eiríkur var okkar maður,” segir Esther í samtali við Fréttablaðið. „Og við hvetjum að sjálfsögðu Friðrik Ómar til að leyfa rauða hárinu að blómstra. Við getum ekki stutt fólk sem fer í felur með lit sinn og er inni í skápnum með rauða litinn eins og Ásgeir Kolbeins,“ segir Esther.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.