Lífið

Bermuda blæs til hátíðar í Öskjuhlíð

Breki Logason skrifar
Hljómsveitin Bermuda telur í klukkan 21:00 á Rúbín í Öskjuhlíðinni.
Hljómsveitin Bermuda telur í klukkan 21:00 á Rúbín í Öskjuhlíðinni.

Útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Bermuda fara fram á Rúbín í Öskjuhlíðinni í kvöld. Verið er að fagna útgáfu fyrstu plötu sveitarinnar sem ber heitið, Nýr dagur. Þó platan sé nýkomin út tala menn um aðra plötu strax. Sú gæti verið á ensku.

„Þarna verður dýrari týpan af ljósa- og hljóðkerfi frá Exton, dýrari týpan af strengjum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands og dýrari týpan af bakröddum," segir Gunnar Þorsteinsson trommuleikari og stofnandi hljómsveitarinnar.

Guðrún Gunnarsdóttir, Hera Björk og Pétur úr Buffinu ætla að syngja bakraddir en tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 í kvöld. „Þetta er okkar fyrsta plata og það er önnur í bígerð. Það má leiða líkur að því að hún verði á ensku en það hefur samt ekkert verið ákveðið í þeim efnum," segir Gunnar sem elskar að spila á tónleikum.

Sveitin er einmitt frekar nýkomin heim eftir svaðilför til Horsens í Danmörku. „Það var alveg hrikalega gaman og rosaleg stemmning. Við spiluðum fyrir 270 íslendinga á þorrablóti sem voru hrikalega hressir. Við vorum í sama hljóðkerfi og Duran Duran notuðu," segir Gunnar sem er spenntur fyrir kvöldinu.

„Við skömmumst okkur ekkert fyrir að spila tónlist sem hægt er að dansa við. Plötunni hefur verið tekið vel af þeim sem hafa heyrt hana en það er erfiðast að koma henni í spilun. Við erum samt að vonast eftir því að fá lag í spilun á Rás 2 fljótlega."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.