Meintur vinskapur Pavarotti og Trump vekur furðu Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. apríl 2017 19:18 Luciano og Donald. Mestu mátar? Vísir/Getty
Fjölmargar hafa gert sér mat úr meintum vinskap Bandaríkjaforseta og óperusöngvarans Luciano Pavarotti - sem lést árið 2007. Á sameiginlegum blaðamannafundi í Hvíta húsinu hrósaði Donalds Trump gesti sínum Paolo Fentiloni, forsætisráðherra Ítalíu, í hástert. Sagði Trump Ítalíu lengi hafa verið forsprakka á sviðum vísinda og lista og nefndi máli sínu til stuðnings snillingana Verdi og fyrrnefndan Pavarotti sem Trump sagði vera vin sinn. „Mikill vinur minn,“ bætti Trump við eins og hans er von og vísa. Þessi ummæli hafa vakið furðu og kátínu meðal fjölmargra, netverja jafnt sem þáttastjórnenda, enda botna þeir ekkert í hvernig þeim Trump og Pavarotti hefur tekist að rækta vinskap sinn í þann áratug sem óperusöngvarinn hefur verið dáinn. Ummælin má sjá hér að neðan.Trump gives a shout out to Pavarotti, calls him "a good friend of mine".Pavarotti died 10 years ago in 2007. —via @MSNBC pic.twitter.com/MHMT065mh3— Kyle Griffin (@kylegriffin1) April 20, 2017 Það er ekki útilokað að Bandaríkjaforseti hafi í raun átt við að þeir hafi verið miklir vinir meðan Pavarotti lifði. Það er heldur ekki útilokað að þeir hafi aldrei nokkurn tímann verið vinir enda hefur reynst erfitt að finna sannanir þess efnis að þeir hafi yfirhöfuð hist. Trump fékk þó óperusöngvarann til að koma fram í einu spilavíta auðjöfursins í Atlantic City árið 2002. Þeim samskiptum lauk með því að Trump krafðist endurgreiðslu frá Pavarotti vegna þess sem hann taldi vera „lélega frammistöðu“ söngvarans. Þá skarst einnig í odda milli Trump og fjölskyldu Pavarottis í kosningabaráttu þess fyrrnefnda í fyrra en ekkja söngvarans taldi boðskap forsetaframbjóðandans ekki samræmast gildum þess ítalska. Gerði hún því þá kröfu, fyrir hönd fjölskyldu Pavarotti, að Donald Trump myndi hætta að nota lög óperusöngvarans á kosningafundum sínum. Hér má sjá grínistann og þáttastjórnandann Jimmy Kimmel gantast með hinn meinta vinskap.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Sjá meira