Stálu bílum og flatskjá af sofandi pari 19. september 2009 08:00 Þjófarnir þurftu ekki að brjóta sér leið inn í húsið, heldur komust inn um glugga með rifu á. Heimilishundurinn þagði þunnu hljóði.
Bíræfnir innbrotsþjófar fóru inn á heimili ungs pars í Hafnarfirði í fyrrinótt og höfðu meðal annars á brott með sér báða bíla þeirra á meðan fólkið var í fastasvefni. „Ég áttaði mig ekki á þessu fyrr en þegar ég fann ekki bíllyklana mína þegar ég var að fara í vinnuna um morguninn,“ segir Ólafur Aron Haraldsson, 24 ára, sem býr ásamt 22 ára kærustu sinni í Ásahverfi í Hafnarfirði. „Þá tók ég eftir að bíllinn var ekki fyrir utan.“ Þegar Ólafur skoðaði sig betur um í íbúðinni sá hann að 42 tommu flatskjár var á bak og burt úr stofunni. Þá höfðu þjófarnir tekið veski hans og kærustunnar með öllum skilríkjum, alla lykla, úr og skólatösku, auk þess sem þeir kipptu með sér öllum fatnaði af þvottasnúrum – sumum hverjum dýrum tískuvörum. Þjófarnir voru að öllum líkindum tveir eða fleiri, því þeir óku burt á báðum bílum fólksins, tíu ára gömlum Subaru Impreza og sjö ára Peugeot 206. „Þeir voru þvílíkt kaldir,“ segir Ólafur, hissa á innbrotsþjófunum. „Það fór ekkert á milli mála að það var einhver heima í húsinu.“ Svo virðist sem þjófarnir hafi farið inn um fremur lítinn glugga á neðri hæð hússins, sem á var rifa, og hafi verið mjög hljóðlátir. Parið á lítinn silkiterríer-hund sem geltir á allt og alla, að sögn Ólafs. Hundurinn þagði hins vegar alla nóttina, sem bendir sterklega til þess að hann hafi ekki orðið þjófanna var og hafi sofið allt af sér. Ólafur G. Emilsson, stöðvarstjóri lögreglustöðvarinnar í Hafnarfirði, segir innbrotið ekki einsdæmi síðustu daga. Ekki sé hægt að tala um faraldur, en þó hafi tvö önnur innbrot verið tilkynnt frá því á fimmtudag. Í tveimur innbrotanna var farið inn í mannlaus hús um hábjartan dag og þaðan stolið ýmsum munum. Ólafur segir ekki liggja fyrir hvort tengsl séu á milli innbrotanna þriggja, en innbrotin tvö um miðjan dag, á fimmtudag og í gær, hafi hins vegar verið ákaflega lík. Innbrotum af því tagi, þar sem farið sé inn í hús um miðjan dag þegar heimilisfólk er við vinnu, hafi fjölgað nokkuð að undanförnu. OLYMPUS DIGITAL CAMERA Silkiterríer hundur
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira