Ríkisskattstjóri heimilar Jóni aðgang að gagnagrunni 19. september 2009 17:49
Ríkisskattstjóri hefur heimilað aðgang Jóns Jósefs Bjarnasonar að gagnagrunni fyrirtækjaskráar en áður var lokað fyrir hann þar sem afstaða Persónuverndar til málsins lá ekki fyrir. Jón Jósef bjó til gagnagrunninn rel8 sem getur rakið flókin krosseignatengsl einstaklinga úr viðskiptalífinu. Það er fyrirtækið IT ráðgjafar- og hugbúnaðarþjónusta sem rekur forritið. Eftir að Jón kynnti nýja forritið fyrir fjölmiðlum kom ríkisskattstjóri fram og sagði að fyrirtæki Jóns hefði ekki leyfi til þess að nota gagnagrunninn í þessum tilgangi fyrr en álit persónuverndar lægi fyrir. Þá kom einnig fram í tilkynningunni að fyrirtæki Jóns Jósefs hefði ekki skilað inn ársreikningum. Sjálfur brást Jón illa við og sakaði ríkisskattstjóra um mannorðsmorð. Það var svo nú fyrir stundu sem ríkisskattstjóri sendi út fréttatilkynningu sem þar sem segir að álit Persónuverndar liggur fyrir. Því sé ekkert til fyrirstöðu að Jón fái aðgang að gagnagrunninum. Svo segir í lok tilkynningarinnar orðrétt: „Þá vill ríkisskattstjóri taka fram að öll verkfæri sem nýst geta eftirlitsaðilum og þar með skattyfirvöldum til að auðvelda störf þeirra og jafnframt við að stuðla að gagnsæi í viðskiptum og til að upplýsa um krosseignatengsl, eru mikils virði." Hér fyrir neðan má lesa tilkynningu ríkisskattstjóra: Fréttatilkynning frá ríkisskattstjóra Að undanförnu hefur verið til umfjöllunar á opinberum vettvangi ósk forráðamanns IT Ráðgjafar- og hugbúnaðarþjónustu ehf. um að fá aðgang að gagnagrunni fyrirtækjaskrár. Ríkisskattstjóri taldi nauðsynlegt m.t.t. eðli gagnagrunnsins og fyrirhugaðar starfsemi, að afstaða Persónuverndar þyrfti að liggja fyrir. Nú þegar afstaða Persónuverndar er ljós ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að forráðamaður hlutaðeigandi félags fái umbeðinn aðgang að uppfylltum viðeigandi öryggis- og formkröfum. Reiknað er með að unnt verði að ganga frá því á næstu dögum og skráin þá gerð aðgengileg. Þá vill ríkisskattstjóri taka fram að öll verkfæri sem nýst geta eftirlitsaðilum og þar með skattyfirvöldum til að auðvelda störf þeirra og jafnframt við að stuðla að gagnsæi í viðskiptum og til að upplýsa um krosseignatengsl, eru mikils virði.
Tengdar fréttir Persónuvernd gerir ekki athugasemdir við gagnagrunninn Persónuvernd gerir ekki athugasemdir við gagnagrunn fyrirtækis Jóns Jósefs Bjarnasonar, tölvunarfræðings, um tengsl manna í viðskiptalífinu sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu. 18. september 2009 16:21 Ráðfærir sig við lögfræðinga Jón Jósef Bjarnason, sem bjó til gagnagrunn um tengsl manna í viðskiptalífinu, segir að Ríkisskattstjóri hafi vegið að mannorði sínu með fréttatilkynningu sem embættið sendi út í fyrrakvöld. Þar segir að til athugunar sé hvort Jón hafi tekið upplýsingar til að nota í gagnagrunninn í heimildarleysi en Jón er fyrrverandi starfsmaður Ríkisskattstjóra. Eins er upplýst í fréttatilkynningunni að einkahlutafélag Jóns Jósefs hafi ekki skilað frá sér ársreikningi undanfarin þrjú ár. 18. september 2009 07:00 Persónuvernd veiti leyfi Ríkisskattstjóri segir að mistök hafi valdið því að Jón Jósef Bjarnason tölvunarfræðingur fékk aðgang að fyrirtækjaskrá til þess að búa til gagnagrunn með myndrænum upplýsingum um tengsl manna í viðskiptalífinu. Persónuvernd hefur málið nú til meðferðar. 15. september 2009 08:00 Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Sjá meira
Persónuvernd gerir ekki athugasemdir við gagnagrunninn Persónuvernd gerir ekki athugasemdir við gagnagrunn fyrirtækis Jóns Jósefs Bjarnasonar, tölvunarfræðings, um tengsl manna í viðskiptalífinu sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu. 18. september 2009 16:21
Ráðfærir sig við lögfræðinga Jón Jósef Bjarnason, sem bjó til gagnagrunn um tengsl manna í viðskiptalífinu, segir að Ríkisskattstjóri hafi vegið að mannorði sínu með fréttatilkynningu sem embættið sendi út í fyrrakvöld. Þar segir að til athugunar sé hvort Jón hafi tekið upplýsingar til að nota í gagnagrunninn í heimildarleysi en Jón er fyrrverandi starfsmaður Ríkisskattstjóra. Eins er upplýst í fréttatilkynningunni að einkahlutafélag Jóns Jósefs hafi ekki skilað frá sér ársreikningi undanfarin þrjú ár. 18. september 2009 07:00
Persónuvernd veiti leyfi Ríkisskattstjóri segir að mistök hafi valdið því að Jón Jósef Bjarnason tölvunarfræðingur fékk aðgang að fyrirtækjaskrá til þess að búa til gagnagrunn með myndrænum upplýsingum um tengsl manna í viðskiptalífinu. Persónuvernd hefur málið nú til meðferðar. 15. september 2009 08:00