VG kom í veg fyrir nýja viljayfirlýsingu 19. september 2009 06:30 Viljayfirlýsing um álver á Bakka við Húsavík rennur út um mánaðamótin. fréttablaðið/gva
Tillaga iðnaðarráðherra um framlengingu viljayfirlýsingar vegna byggingar álvers á Bakka fékkst ekki afgreidd á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Vegna andstöðu ráðherra Vinstri grænna var tillagan ekki samþykkt heldur vísað til meðferðar í sérstakri ráðherranefnd um orkumál. Sú nefnd var sett á laggirnar á þriðjudag til að fjalla um málið og einnig þau verkefni á sviði orkumála sem tengjast Stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar og aðila á vinnumarkaði. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, voru skipuð í ráðherranefndina. Katrín er erlendis um þessar mundir og tók Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sæti í nefndinni sem starfandi iðnaðarráðherra. Nefndin hittist þannig skipuð á fimmtudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, fór yfir málið en komst ekki að niðurstöðu. Viljayfirlýsingin um álver við Bakka á að renna út um næstu mánaðamót. Í stöðugleikasáttmálanum svonefnda segir að ríkisstjórnin muni greiða götu þegar ákveðinna stórframkvæmda, svo sem álvera í Helguvík og Straumsvík, auk þess að hraða undirbúningi áforma sem tengjast fjárfestingu í meðalstórum iðnaðarkostum, svo sem gagnaverum og kísilflöguframleiðslu. „Kappkostað verður að engar hindranir verði af hálfu stjórnvalda í vegi slíkra framkvæmda eftir 1. nóvember 2009,“ segir í sáttmálanum. Í sáttmálanum er ekki vikið að álveri við Bakka.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Sjá meira