Búrið verði jólagjöfin í ár 19. september 2009 04:00 Einar Gunnar, sem hér sést ásamt Hlyni, syni sínum, í anddyri laugarinnar, er sáttur við árangur söfnunarinnar.fréttablaðið/arnþór „
Við stefnum ótrauð á að fiskabúrið verði jólagjöfin í ár. Það vantar enn herslumuninn en við vonum að þetta gangi, og ætlum að láta þetta ganga," segir Einar Gunnar Guðmundsson, meðlimur í Mími, vináttufélagi Vesturbæjar. Söfnun fyrir nýju fiskabúri í anddyri Vesturbæjarlaugar, sem félagið hefur staðið fyrir undanfarið, lauk formlega í vikunni. Alls söfnuðust um 700.000 krónur. Félaginu þykir mikill sjónarsviptir að fiskabúri sem tekið var niður úr anddyri laugarinnar árið 1985. Einar segir söfnunina hafa náð langt upp í markmiðið sem haft var að leiðarljósi í upphafi, en stefnan var að safna einni milljón króna. „Við erum mjög sátt. Enn höfum við ekki leitað til neinna fyrirtækja, en höfum í hyggju að hafa samband við nokkur valin fyrirtæki í Vesturbænum." Að sögn Einars er næsta skref að hefja vinnu með arkitekt laugarinnar, í samvinnu við þá sem veita henni forstöðu. „ÍTR hefur samþykkt að taka við rekstri fiskabúrsins eftir að við afhendum lauginni það. Sá rekstur ætti ekki að kosta nema um 10 til 15.000 krónur á mánuði. Vonandi verður þetta til að auka enn frekar aðsókn að lauginni," segir Einar og bendir þeim sem áhuga hafa á verkefninu á Facebook-síðu söfnunarinnar, sem ber titilinn Fiskabúr í anddyri Vesturbæjarlaugar. Þar sé allar upplýsingar að finna.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira