"Eins og að vera á tónleikum í útlöndum“ 10. júlí 2011 14:39 Frá tjaldsvæðinu á Gaddstaðaflötum þar sem hátíðin fór fram Mynd/Vilhelm „
Við erum alveg í skýjunum bara, þetta gekk alveg vonum framar," segir Haraldur Ási Lárusson, einn aðstandenda Bestu útihátíðarinnar sem fór fram á Gaddstaðaflötum við Hellu um helgina. Hann segir að nú þurfi að taka sviðið niður og hreinsa til á svæðinu. „Við áætlum að vera búin að því fyrir klukkan ellefu í kvöld. Nú er starfsfólkið okkar bara að vakna og við erum að fara í þetta," segir hann. Hann segir að um tíu þúsund manns hafi verið á svæðinu þegar mest lét og allt hafi farið vel fram. „Það voru miklu minni pústrar í nótt en gær enda var fólk orðið svo þreytt að það fóru flestir snemma í háttinn." Aðspurður hvort að aðalnúmer hátíðarinnar hljómsveitin Quarashi hafi staðið undir væntingum, segir Haraldur: „Þeir gerðu það fyrir allan peninginn - þetta var eins og að vera á tónleikum í útlöndum." Varðstjóri hjá lögreglunni á Hvolsvelli segir að menn geti alveg verið sáttir eftir helgina en engin alvarleg atvik hafi komið upp. „Mennirnir sem voru að vinna þarna eru búnir að standa sig ótrúlega vel," segir hann. Þó kom slatti af fíkniefnamálum upp en það hafi mest verið skammtar til einkaneyslu. Og áður en gestir hátíðarinnar halda heim á leið geta ökumenn fengið að blása í áfengismæli við útganginn. „Við bjóðum upp á þetta til að koma í veg fyrir vesen," segir hann að lokum.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Sjá meira