Enginn nýliðabragur á Valsmönnum 13. október 2005 19:15
Valsmenn undirstrikuðu í gærkvöld gegn Skagamönnum að þeir ætla sér að berjast á toppnum í sumar. Þá unnu þeir sanngjarnan sigur, 2-0, og eru því jafnir að stigum við FH og KR. Fyrri hálfleikur byrjaði með miklum látum en Hjörtur Hjartarson fékk dauðafæri strax á fyrstu mínútu og hann var klaufi að skora ekki. Skagamenn voru mikið mun frískari og það var nokkuð gegn gangi leiksins þegar Garðar Gunnlaugsson kom heimamönnum yfir á 8. mínútu. Hann fékk þá frábæra sendingu frá Guðmundi Benediktssyni, lék fram hjá Páli Gísla í markinu og lagði boltann auðveldlega í netið. Vel gert. Jafnræði var með liðunum það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og fátt markvert sem gerðist. Síðari hálfleikur var ívið skemmtilegri og líflegri. Bæði lið sóttu strax af krafti en sóknar heimamanna voru alltaf markvissari og hættulegri. Þeir uppskáru síðan annað mark þegar Reynir Leósson braut á Garðari Gunnlaugssyni. Dómur sem þjálfari ÍA, Ólafur Þórðarson, var ósáttur við. "Þetta var ekki víti fyrir fimmaura og þessi dómur eyðilagði leikinn," sagði Ólafur. Skagamennn náðu aldrei að ógna marki Vals að neinu viti eftir þetta og Valsmenn fögnuðu sanngjörnum sigri. Varnarleikur liðsins var frábær, miðjuspilið traust og Garðar Gunnlaugsson sýndi að hann getur vel staðið undir væntingum frammi en hann lék mjög vel í gær. Sóknarleikur Skagamanna var bitlaus með öllu og það felldi liðið. Varnarleikur liðsins hefur þar að auki oft litið betur út. Þetta ÍA-lið virkar ekki sannfærandi og þarf að bæta sig mikið ef þeir ætla að fá eitthvað úr sumrinu. "Þetta var fín frammistaða og mikill baráttuleikur. Við reyndum að spila boltanum og það tókst ágætlega á köflum og við sköpuðum okkur þokkaleg færi," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, en hann var ánægður með Garðar. "Hann spilaði eins og engill í dag og lét finna fyrir sér. Ég er verulega sáttur með hans lek" Ólafur Þórðarson sagði að sínir menn hefðu verið betri í leiknum. "Við áttum fínar sóknir og áttum meira í fyrri hálfleik. Ég er þokkalega sáttur en við áttum að gera betur," sagði Ólafur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Sjá meira