Vilja að unnið verði allan sólarhringinn til að laga brúnna 10. júlí 2011 11:53
Samtök Ferðaþjónustunnar hafa lýst yfir neyðarástandi í greininni vegna lokunar hringvegarins. Erlendir ferðamenn hafa þegar afbóka ferðir sínar til landsins vegna ástandsins. Vegagerðin telur að það geti tekið allt að tvær til þrjár vikur að gera við brúna yfir Múlakvísl eftir atburði gærdagsins. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að stjórnendur fyrirtækja trúi ekki að stjórnvöldum sé alvara. Árni Gunnarsson, formaður Samtaka Ferðaþjónustunnar, segir í tilkynningu að það sé ótækt að hafa þjóðveginn lokaðan svo lengi yfir háönnina í ferðaþjónustu. Hundruð ferðamanna fara hringveginn dag hvern og þúsundir á næstu dögum. „Það er mikilvægt að halda Fjallabaksleið nyrðri vel færri, eins og stefnt er að, en það eru þúsundir bifreiða á ferðinni á þessu svæði og stærsti hluti þeirra eiga ekkert erindi inn á Fjallabak og má nefna mikinn fjölda smábíla og venjulegar rútur sem munu stórskemmast, auk þess sem Fjallabaksleið mun aldrei geta annað þessari miklu umferð," segir í tilkynningunni. Þar segir að búast megi við því að afbókanir hópa fari að berast strax eftir helgi ef ekki liggur fyrir önnur áætlun en sú að hringvegurinn verði lokaður í tvær til þrjár vikur. „Það er gríðarlegur kostnaður við að endurskipuleggja ferðir og greiða skaðabætur vegna ferða sem ekki er hægt að fara. Það er skýlaus krafa ferðaþjónustunnar að öllum tiltækum ráðum verði beitt til að opna leið yfir Múlakvísl sem allra fyrst. Hver dagur er mjög dýr þar sem ferðir um hringveginn er ein helsta söluvara ferðaþjónustunnar." Því er beint til Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, sem jafnframt er ráðherra samgöngumála, að hann beiti sér af öllu afli í málinu og unnið verði allan sólarhringinn við að opna þessa leið. „Vegna verkefnaskorts í vegagerð mun mikið til af mannskap, tækjum og tólum svo möguleikarnir til að bregðast hratt við eru fyrir hendi,“ segir ennfremur.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Sjá meira