Fimm látnir úr hermannaveiki 13. október 2005 19:15
Fimm Norðmenn eru látnir úr hermannaveiki sem blossaði upp í Fredrikstad í Noregi. Tuttugu og fjórir í viðbót hafa greinst með sjúkdóminn. Enn er ekki vitað hvernig hann barst milli manna. Veikin herjar á lungun og tölurnar sýna að hún dregur þriðjung þeirra veikjast til dauða. Flestir hinna smituðu og látnu voru á sjötugsaldri, búsettir á svæðinu eða höfðu dvalið þar undanfarið. Í morgun bættust átta sjúklingar við á sjúkrahúsið Östfold í Fredrikstad með einkennin: höfuðverk, beinverk, háan hita og þurran hósta. Tove Kreppen Jörgensen, lækningaforstjóri Östfold-spítala, segir að þá sjúklinga hafi læknar rannsakað og staðfest að þeir væru með hermannaveiki. Hermannaveiki smitast ekki manna á milli og grunur leikur á að smitleiðin sé loftræstikerfi eða vantsdælukerfi. Í hvaða byggingu er ekki vitað en sjúkrahúsið í Fredrikstad hefur jafnvel verið nefnt. Allt kapp er lagt á að kortleggja ferðir þeirra sem hafa smitast en það er tímafrekt verkefni. Slökkt hefur verið á loftræstikerfum á svæðinu til að hindra frekari útbreiðslu. Sjúkrastofnanir í Ósló eru í viðbragðsstöðu þar sem líkur eru taldar á að spítalinn í Fredrikstad, sem er um 80 kílómetra austur af höfuðborginni, nái ekki að anna öllum þeim sjúku. Svein Rönsen, sóttvarnalæknir í Fredrikstad, segir aðspurður hvort heilbrigðisyfirvöld muni ná stjórn á ástandinu að áður en þau finni uppruna sýkingarinnar geti þau ekki fullyrt að þau hafi fullkomna stjórn á því en unnið sé að því hörðum höndum að finna út hvar sjúklingarnir hafi smitast. Mikill ótti hefur gripið um sig meðal íbúa Fredrikstad sem leita unnvörpum til læknis til að afsanna minnsta grun um smit.
Erlent Fréttir Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira