Sport

Halda ólympíugullinu í 4x400

Alþjóðlegur íþróttadómstóll kvað upp þann úrskurð í morgun að bandaríska boðhlaupssveitin í 4x400 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í Sidney fyrir fimm árum skyldi halda gullverðlaunum sínum. Alþjóða frjálsíþróttasambandið hafði lagt það til við Alþjóða ólympíunefndina að bandaríska sveitin yrði svipt gullinu vegna þess að einn úr sveitinni, Jerome Young, hefði ekki átt að fá að hlaupa þar sem hann hefði fallið á lyfjaprófi árið 1999. Samkvæmt niðurstöðu íþróttadómstólsins fær Young ekki að halda sínum verðlaunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×