Sport

1000 keppendur á Visa Rey Cup

Alþjóðlegt knattspyrnumót Visa Rey Cup hófst í Laugardalnum í morgun. Tæplega eitt þúsund strákar og stelpur taka þótt í mótinu sem lýkur með úrslitaleikjum á sunnudag. Þetta er í fjórða sinn sem mótið er haldið og hafa keppendur aldrei verið fleiri. Auk innlendra knattspyrnuliða sækja mótið heim nokkur erlend lið frá Svíþjóð, Danmörku og Skotlandi. Einn kunnasti dómari Englendinga undanfarin ár, Dermot Gallagher, dæmir úrslitaleiki mótsins á sunnudag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×