Innlent

Þyrlan sótti skipverja

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, og björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson frá Ísafirði voru kölluð út klukkan korter yfir tíu í morgun vegna tilkynningar um skipverja sem hafði fengið hjartaáfall um borð í skútu við mynni Dýrafjarðar. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var skipverjinn fluttur um borð í skemmtiferðaskipið Explorer sem var statt skammt frá skútunni en þar hlúði læknir að sjúklingnum. Þyrlan náði síðan í hann um borð í skemmtiferðaskipið skömmu fyrir hádegi og er nú á leið á sjúkrahús í Reykjavík með hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×