Lúðvík gagnrýnir forsætisráðherra 13. október 2005 19:33 "
Það liggur í augum uppi að málinu er engan hátt lokið," segir Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, en hann ritaði grein í Morgunblaðið í gær þar sem hann fór hörðum orðum um þátttöku Halldórs Ásgrímsson forsætisráðherra í einkavæðingaferli Búnaðarbankans. Í grein sinni segir Lúðvík að þeir sem fari illa með vald sem þeim er falið eigi að dvelja annars staðar en í stjórnarráðinu, hvort sem það sé á vegum hins opinbera eða ekki. "Það er auðvitað athyglisvert í málinu að forsætisráðherra er bæði seljandi og kaupandi og fram hjá þeirri staðreynd verður ekki litið. Ekkert samfélag sem vill kenna sig við lýðræði myndi láta það yfir sig ganga að selja sjálfu sér ríkisbanka. Meira að segja má líta til þess að Rússar hafa reynt að taka á málum sem þessum hvað einkavæðinguna varðar og setja kaupendurna í steininn," segir Lúðvík. Aðspurður hvort hann sé með grein sinni að lýsa yfir vantrausti á forsætisráðherra segir Lúðvík: "Ég prísa mig sælan fyrir að þurfa ekki að verja hann." Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, segist hissa á grein Lúðvíks. "Þeir Samfylkingarmenn sem hafa nú hvað hæst og ráðast harkalega gegn forsætisráðherranum alla daga og væna hann og fjölskyldu hans um að hafa misnotað aðstöðu sína við söluna á Búnaðarbanka Íslands, líta fram hjá staðreyndum málsins. Búnaðarbankinn var seldur hæstbjóðanda. Í öðru lagi fór erlent ráðgjafafyrirtæki yfir málið. Í þriðja lagi gerði einkavæðingarnefnd þetta að tillögu sinni og í fjórða lagi þá virðist engu máli skipta hverjir fjalla um málið og túlka umræðuna sér í hag. KB banka er málið erfitt í umræðunni en fyrirtækið er eitt framsæknasta og öflugasta fyrirtæki landsins sem hefur beitt sér fyrir mikilli útrás. Halldór Ásgrímsson hefur hvergi hyglað sér og sínum," segir Guðni.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira