Lífið

Britney reynir að leika á fjölmiðla

Britney og Adnan Ghalib reyndu að leika á fjölmiðla.
Britney og Adnan Ghalib reyndu að leika á fjölmiðla.

Britney Spears setti á svið leikrit til þess að flýja fjölmiðla og endurheimta frelsi sitt. Í leikritinu var hún með tvær einkaþotur, nokkra öryggisverði, eðalvagna og jafnvel lögreglan var kölluð til aðstoðar.

Hún lét fjölmiðla halda að hún væri á leið til New Jersey eða Hawai en skráði sig síðan inn á hótel á Baja í Mexíkó. Með í för var nýi vinur hennar Adnan Ghalib. Sá er breskur ljósmyndari sem hefur veitt stúlkunni stuðning undanfarið.

Á flugvellinum í New Jersey kölluðu öryggisverðir stúlkunnar jafnvel til lögreglu til aðstoðar vegna ágangs ljósmyndara. Enginn Britney var hinsvegar á staðnum því hún var enn stödd í Los Angeles. Hún fór síðan til Mexíkó með vini sínum þegar allir áttu að halda að hún væri ekki í bænum. Sniðug stelpa






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.