Siggi skiptir um bíl á níu mánaða fresti 14. febrúar 2008 13:53 Siggi er með bíladellu á háu stigi.
Sigurður Stormur Ragnarsson veðurfréttamaður og formaður jeppaklúbbsins NFS fékk splunkunýjan Land Rover Discovery 3 á dögunum. Illar tungur stungu upp á því að Siggi hefði skipt um bíl eftir slakt gengi í nýlegri ferð jeppaklúbbs fréttastofunnar, NFS, en hann þvertekur fyrir það. „Það er alfarið rangt, enda hefði ég þá ekki fengið mér eins bíl aftur." segir Siggi, sem festi „gamla" Land Roverinn í hverri sprænu í ferðinni og hlaut fyrir viðurnefnið Siggi Sífestir. Það eru að sögn Sigga einfaldari ástæður fyrir skiptunum. „Hann var fyrir það fyrsta orðinn níu mánaða gamall og keyrður hvorki meira né minna en 11.800 kílómetra," segir Siggi og bætir við að hann hafi það fyrir reglu að skipta um bíl á níu mánaða fresti. Síðastliðin tvö ár hefur Siggi því átt tvo Nissan Patrol jeppa og er nú á sínum öðrum Land Rover. Jeppinn er Sigga nauðsynlegur, en hann vill að vel fari um sig í tíðum ferðum milli landshluta. „Ég er mikið náttúrubarn og fer reglulega út í náttúruna að hlaða diskinn."segir Stormurinn. Siggi átti afmæli í gær, og gengu þær sögur að hann hefði fengið sér bílinn í afmælisgjöf. Siggi neitar því þó, og segir að það hafi verið eiginkonan sem var svona rausnarleg í tilefni afmælisins. Hólmfríður Þórisdóttir, eiginkona Sigga var ekki alveg jafn viss um það þegar Vísir hafði samband við hana. „Jú ég gaf honum þetta í afmælisgjöf, maður er svona rausnarlegur" sagði hún kímin. „Eftir venjulegan meðgöngutíma þá verður hann að skipta. Ég hef ekki tölu á þeim bílum sem við höfum átt í gegnum tíðina.“ Hún segir Sigga mikinn bíladellukarl, en hún hafi ekki smitast af dellunni enn. „Ég er alveg ánægð með minn Citroen Picasso" segir Hólmfríður hlæjandi.
Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Forrest Gump rokksins allur Tónlist Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fleiri fréttir Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Sjá meira