Lífið

Fóstbræður koma saman á ný

MYND/Vilhelm Gunnarsson
Fóstbræður komu aftur saman klukkan 11 í morgun,í fyrsta sinn í nær áratug. Aðdáendum hópsins er óhætt að byrja að anda aftur, grínararnir voru ekki að gera nýjan þátt. Tilgangurinn var þó göfugur. Þeir afhentu Umhyggju veglega gjöf, ágóðann af sölu allra fimm Fóstbræða-þáttaraðanna á DVD - rúmar þrjár milljónir króna.

Fóstbræðra-safnið kom út fyrir síðustu jól og rokseldist eins og við var að búast. Söluágóðinn var því ríflegur, um 3.378.720 kr, og ákváðu Fóstbræður af sinni alkunnu góðvild, í samvinnu við Senu og Stöð 2, að láta hann renna óskiptan til Umhyggju. Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.