Dexter-stjörnurnar Michael C. Hall, 39 ára, og Jennifer Carpenter, 31 árs, eru hætt saman.
Fjölmiðlafulltrúinn þeirra sendi tilkynningu sem hljómaði svona: Eftir að hafa verið skilin að skiptum í þó nokkurn tíma, hafa Jennifer Carpenter og Michael C. Hall sótt um endanlegan skilnað.
Jennifer og Michael giftu sig í desember árið 2008 eftir að hafa kynnst við tökur á sjónvarpsþáttunum Dexter.