Lífið

Hjónabandi Hurley lokið

Hurley og Arun Nayar eru skilin eftir þriggja ára hjónaband.
Hurley og Arun Nayar eru skilin eftir þriggja ára hjónaband.
Leikkonan Elizabeth Hurley hefur skilið við eiginmann sinn, indverska viðskiptajöfurinn Arun Nayar, eftir þriggja ára hjónaband. „Þetta var slæmur dagur. Svo að það sé nú á hreinu þá hættum við Arun saman fyrir nokkrum mánuðum. Vinir okkar og fjölskyldur vita af þessu,“ skrifaði hin 45 ára Hurley á Twitter-síðu sína.

Erlendir fréttamiðlar höfðu greint frá sambandi hennar og fyrrverandi krikketstjörnunnar Shane Warne frá Ástralíu. Í kjölfarið ákvað Hurley að láta vita um stöðu mála í einkalífi sínu á Twitter.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.