Elín sleikir sárin með samnemanda 14. desember 2010 08:00 Á meðan Tiger Woods reynir að koma ferli sínum aftur á flug er Elin Nordegren komin með nýjan kærasta upp á arminn.
Á meðan fyrrverandi eiginmaður hennar, Tiger Woods, rembist eins og rjúpan við staurinn við að ná tökum á sveiflunni og koma ferli sínum aftur í gang er Elin Nordegren nú sögð komin með nýjan kærasta. Sá er víst nemandi við háskóla í Flórída, eins og Elin, og er 35 ára maður frá Suður-Afríku. „Það hafa verið kossar og faðmlög en ég veit ekki hvort þetta hefur gengið eitthvað lengra,“ sagði heimildarmaður The Sun sem greindi fyrst frá málinu. Elin er ekki á flæðiskeri stödd eftir að gengið var formlega frá skilnaði hennar og Tigers því samkvæmt fréttum fékk hún hundrað milljónir dollara frá kylfingnum lausláta. Elin hefur ekki viljað tjá sig við fjölmiðla eftir fjölmiðlafárið og raunar hefur henni tekist merkilega vel upp að halda sig fjarri kastljósinu, hún talaði til að mynda aðeins einu sinni opinberlega eftir að tugir ástkvenna fyrrverandi eiginmanns hennar stigu fram. Og hún hefur aldrei tjáð sig um hvað gerðist þegar Tiger klessti á fyrir utan heimili þeirra í Flórída. Tiger hefur sjálfur kúrt kvenmannslaus og það hefur gengið erfiðlega hjá honum að koma golfinu aftur í samt lag. Hann missti nýverið efsta sætið á styrkleikalista kylfinga yfir til Bretans Lee Westwood og tapaði í bráðabana á eigin boðsmóti sem haldið var fyrir stuttu eftir að hafa verið í forystu nánast allan tímann. Elinu gengur hins vegar vel í námi sínu en hún er að læra sálfræði.
Mest lesið Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Lífið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Samsláttur skapandi greina öflugur á Íslandi Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Fleiri fréttir Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Bay segir skilið við Smith Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Hver er Endakallinn frá Ibiza? Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Stutt í að uppselt verði í heilt og hálft Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Walking Dead-leikkona látin Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Gekk hringinn í kringum landið fyrir vannærð börn í Afríku Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Terry Reid látinn Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Sjá meira