Lífið

Frjósemi í Hollywood 2010

Ellý Ármanns skrifar
Pink, Mariah, Miranda. MYNDIR/Cover Media
Pink, Mariah, Miranda. MYNDIR/Cover Media

Á meðfylgjandi myndum má sjá nokkrar af stærstu Hollywood stjörnunum sem eignuðust börn eða urðu óléttar á árinu 2010.

Eftir margra mánaða vangaveltur viðurkenndi söngkonan Mariah Carey loksins að hún væri barnshafandi í lok október 2010. Sagan segir að hún gangi með tvíbura en ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum.

Söngkonan Pink sagði frá því að hún er ólétt í spjallþættinum Ellen um miðjan nóvember. Hún vonast eftir dreng að eigin sögn.

Miranda Kerr og Orlando Bloom giftu sig í júlí og í ágúst staðfestu hjónin að þau eiga von á barni. Athygli vakti þegar Miranda sat fyrir kasólétt kviknakin í W tímaritinu.

Vince Vaughn og eiginkona hans Kyla Weber eiga von á barni og eru í skýjunum samkvæmt heimildarmanni nákomnum hjónunum.

Leikkonan Christina Applegate tilkynnti í júlí að hún væri ófrísk. Hún ætlar ekki að hætta að ganga á hælum þó hún sé að farast í löppunum á meðgöngunni.

Eiginkona John Travolta, Kelly Preston, 47 ára, eignaðist dreng 23. nóvember síðastliðinn. Fyrir eiga hjónin dótturin Ellu Bleu og soninn Jett sem féll frá á síðasta ári.

Söngkonan Alicia Keys og upptökustjórinn Swizz Beatz náðu að halda ástinni frá fjölmiðlum þangað til í maí á þessu ári en þá viðurkenndu þau trúlofun sína. Stuttu síðar datt Alicia óvænt á sviði en sem betur fer var allt í lagi með hana og barnið sem hún fæddi 14. október síðastliðinn. Alicia eignaðist dreng sem skírður var Egypt.

Söngkonan Celine Dion og eiginmaður hennar og umboðsmaður Rene Angelil eignuðust tvíburana Eddy og Nelson í október.

Dóttir Paul McCartney, hönnuðurinn Stella McCartney, eignaðist sitt fjórða barn með eiginmanni sínum Alasdhair Willis 23. nóvember síðastliðinn. Um var að ræða stúlku sem heitir Reiley. Nú eiga þau tvo drengi og tvær stúlkur.

Isla Fisher og grínistinn Sacha Baron Cohen eignuðust sitt annað barn í september. Þau hafa náð að halda barninu algjörlega frá fjölmiðlum og því er ekki vitað hvort Olive litla stúlkan þeirra hafi eignast bróður eða systur.

Leikarinn Matt Damon og eiginkona hans Luciana eignuðust fjórðu stúlkuna, Stellu Zavala, í október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.