Beint á Íslandstúr í kjölfar tónleika með Bombay Bicycle Club í London 16. desember 2010 11:00 Mukkaló er nýkomin frá Bretlandi og er þegar farin í tónleikaferð um landið. fréttablaðið/daníel
Hljómsveitin Mukkaló var stofnuð fyrir rúmu ári en hefur náð að afreka ýmislegt. Hljómsveitin er nýkomin heim frá Bretlandi þar sem hún kom fram með spútniksveitinni Bombay Bicycle Club. „Þeir voru aldrei með neina stjörnustæla og eru mjög hógværir,“ segir Þorbjörg Ósk Eggertsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar Mukkaló. Hljómsveitin Bombay Bicycle Club, sem kom fram á Iceland Airwaves hátíðinni í október, bauð Mukkaló að spila með sér á tvennum tónleikum í Queen Elizabeth Hall í Lundúnum á dögunum. Hljómsveitirnar kynntust í október þegar strákarnir í Bombay Bicycle Club mættu óvænt á tónleika Mukkaló í Reykjavík. „Við keyptum flugmiðana, en þeir borguðu okkur smá pening fyrir tónleikana,“ segir Þorbjörg. „Við gerðum litla EP-plötu áður en við fórum út og gátum selt úti. Við seldum tæplega 200 diska. Þeir voru hissa á hvað við náðum að selja mikið.“ Bombay Bicycle Club nýtur vaxandi vinsælda í Evrópu, en önnur breiðskífa hljómsveitarinnar náði áttunda sæti breska vinsældalistans á árinu. Þorbjörg segir vinsældirnar ekki hafa stigið strákunum í hljómsveitinni til höfuðs, en tveir af þeim leyfðu henni og fiðluleikara Mukkaló að gista á dýnum á gólfi íbúðar sem þeir leigja í Lundúnum. Þá segir hún fólkinu í kringum bresku hljómsveitina hafa litist vel á Mukkaló. „Umboðsmaður Bombay var mjög spenntur fyrir að vinna meira með okkur,“ segir hún. „Hann vildi hjálpa okkur að halda fleiri tónleika í Englandi og svona. Þeir töluðu líka um hvað þeim fannst gaman á Íslandi, þeir elskuðu landið og langar pottþétt að koma aftur.“ Mukkaló hélt í tónleikaferð um landið í gær ásamt Júníusi Meyvant. Ferðalagið er sérstakt að því leyti að kirkjur landsins verða nýttar sem tónleikasalir. Tónleikaferðin hófst í Sauðárkrókskirkju og í kvöld koma þau fram í Siglufjarðarkirkju. Á næstu dögum koma þau svo við í Húsavíkurkirkju, Bláu kirkjunni á Seyðisfirði, Víkurkirkju og loks í Stóra-Núpskirkju í Gnúpverjahreppi. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fleiri fréttir „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Sjá meira