Stefnir á Peking 2008 13. október 2005 18:54
Taekwondo-maðurinn Björn Þorleifsson úr Fimleikafélaginu Björk hefur átt góðu gengi að fagna síðan hann byrjaði að æfa taekwondo fyrir 15 árum síðan. Björn er sigursælasti taekwondo-maður okkar Íslendinga. Hann tók nýlega þátt í US Open í Bandaríkjunum og bar sigur úr býtum. Á mótinu voru heims- og Evrópumeistarar, alls 26 landslið. Björn var að auki valinn besti keppandi mótsins, sem kórónaði glæsilegan árangur hans. „US Open er liður í undirbúningi fyrir heimsmeistaramótið sem er í apríl," sagði Björn í samtali við Fréttablaðið. „Ég held á næstu dögum til Danmerkur, verð þar í æfingabúðum með danska og sænska landsliðinu ásamt einhverjum úr bandaríska landsliðsinu. Eftir heimsmeistaramótið er Evrópumót og Smáþjóðaleikarnir svo eitthvað sé nefnt." Taekwondo heillaði Björn á unga aldri og hefur hann lagt stund á íþróttina síðan hann var 12 ára gamall. „Ég hef alltaf haft áhuga á að gera eitthvað svona og langaði að byrja að æfa. Ég ætlaði nú samt alltaf að fara í júdó eða karate en svo dró vinur minn mig með á taekwondo-æfingu. Ég hélt áfram en hann hætti," sagði Björn og brosti. Bönnuð íþrótt Taekwondo er kóresk íþrótt sem var lengi vel bönnuð. Eftir seinni heimsstyrjöldina var banninu aflétt og spruttu þá upp taekwondo-skólar. Taekwondo-nemendur frá Kóreu héldu síðan út fyrir landsteinana og stofnuðu eigin skóla. Íþróttin fór að láta á sér kræla hér á landi upp úr 1990 þegar fyrsti skólinn var stofnaður í Hafnarfirði. Gróskan hefur vaxið með hverju árinu og náði íslenska unglingalandsliðið sér í tvenn gullverðlaun, ein silfur- og bronsverðlaun á síðasta Norðurlandamóti. Framtíð taekwondo er því björt hér á landi. Blár og marinn eftir bardaga Að sögn Björns eru átökin í íþróttinni töluverð. „Þetta er bardagaíþrótt þar sem full snerting er leyfð. Júdó gengur meira út á glímu, boxið er meira með höndum en í taekwondo eru fæturnir meira áberandi. Þar eru til dæmis spörk algengari," sagði Björn. „Við erum með vesti og hjálma og stigakerfið er rafrænt. Hver bardagi samanstendur af þremur þriggja mínútna lotum." Það er greinilega ekki tekið út með sældinni að keppa í taekwondo því Björn var allur blár og marinn á fótunum eftir átökin á US Open. Björn fullyrti að það fylgdi íþróttinni. „Eftir 5 bardaga eða 15 lotur er þetta viðbúið. Þó að það sé sparkað fyrir ofan mitti er maður samt sem áður marinn á sköflungnum og ristinni." Björn sagði að taekwondo ætti gríðarlegum vinsældum að fagna úti í heimi. „Það sést best á því að 100 milljónir manns æfa taekwondo." Björt framtíð Það er af nægu að taka þegar árangurslisti Björns er skoðaður. Hann á fjóra Norðurlandameistaratitla í farteskinu sem og sex Íslandsmeistaratitla. „Þetta er það eina sem ég geri núna ásamt því að þjálfa og ég fer einnig út stundum til að æfa. Mitt æðsta takmark er að komast á Ólympíuleikanna 2008," sagði Björn en þangað komast aðeins 16 keppendur í heiminum. Björn var hársbreidd frá því að komast á síðasta ári en Evrópa fékk fjögur sæti á Ólympíuleikunum og reyndist Björn vera í fimmta sæti. „Ef allt gengur vel á ég að komast næst." Afrekalisti Björns Mars 2005 U.S. Open: Gull í -78 kg. Valinn besti keppandi mótsins af yfir 1000 keppendum. Janúar 2005 Norðurlandameistari. April 2004 Íslandsmeistari. Janúar 2004 Norðurlandameistari. Desember 2003 Björn leggur Asíumeistarann Yang Liu af velli á heimsúrtökumóti fyrir Ólympíuleikanna. Nóvember 2003 Scandinavian Open: Gull, sigraði landsliðsmann Dana í úrslitabardaganum. Styrkleiki: B-mót. Október 2003 US Masters Cup: Gull og valinn besti keppandi mótsins. Styrkleiki: B-mót. Október 2003 US Cup: Gull, og valinn besti keppandi mótsins. Styrkleiki: B-mót. Ágúst 2003. Wonderful Copenhagen: 2. sæti. Styrkleiki: B-mót. Febrúar 2003 American Eagle Classic Tae Kwon Do Tournament: Gull í sínum þyngdarflokki. Valinn besti keppandi mótsins. Október 2002 US Cup: Brons í -78 kg flokki Styrkleiki: B-mót. Scandinavian Open: Gull í -78 kg. Styrkleiki: B-mót. Ágúst 2002. Wonderful Copenhagen TKD Championship: Gull í -78 kg flokki. Valinn besti keppandinn á mótinu annað árið í röð. Styrkleiki: B-mót. Desember 2001 The 17th International Park Pokal TKD: Brons. Styrkleiki: A-mót. Október 2001 US Cup: Gullverðlaun í -78 kg flokki. Valinn í úrvalslið mótsins. Ágúst 2001 Wonderful Copenhagen TKD Championship: Gullverðlaun í -72 kg flokki karla og valinn besti keppandinn á mótinu. Febrúar 2001 American Eagle Classic Tae Kwon Do Tournament: Gull í sínum þyngdarflokki. Nóvember 2000 Opna Evrópska Meistaramótið í París: Gull í -72 kg flokki og kosinn besti keppandinn á mótinu. Íslandsmeistari 1997, 1998, 2000, 2001, 2002, 2004 (árið 1999 dvaldist Björn við æfingar í USA og 2003 í æfingarbúðum erlendis).
Íþróttir Mest lesið Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Trump styður við bakið á Tiger Golf Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Fótbolti Í fyrsta sinn á þessari öld sem enginn fellur á lyfjaprófi Sport Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og úrslitakeppnir í körfuboltanum Sport Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Enski boltinn Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Fótbolti Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Golf Sindri sópaði Snæfelli en Fjölnismenn héldu sér á lífi gegn KV Körfubolti Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Verða allir með gullmerki til að sýna liðsfélaga sínum stuðning Í fyrsta sinn á þessari öld sem enginn fellur á lyfjaprófi Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og úrslitakeppnir í körfuboltanum Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Sindri sópaði Snæfelli en Fjölnismenn héldu sér á lífi gegn KV Trump styður við bakið á Tiger Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Dembélé með aðra tvennu gegn Toulouse „Við gátum bara ekki komið boltanum ofan í körfuna“ Doncic missir mögulega af öllum verðlaunum vegna meiðsla Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Ægir Jarl mættur til Fram Meistararnir með sópinn á lofti „Engar afsakanir, Breiðablik vann bara 3-1“ „Það er búinn að vera stígandi í hópnum í allan vetur“ Tindastóll - Njarðvík 58-88 | Njarðvík verður með sópinn á lofti í næsta leik Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Einn besti útherji NFL-deildarinnar farinn í meðferð Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Gattuso hættir með sorg í hjarta Diljá flaug á hausinn en skoraði samt Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins „Svona er lífið, en allt gerist af ástæðu“ Forsetinn segir af sér og UEFA hótar Ítölum Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Draumabyrjun hjá Lindu Líf í atvinnumennskunni Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Fyrrverandi markakóngur HM lagður inn á sjúkrahús Sjá meira