Innlent

Brunavörnum í MR verulega ábótavant

Gríðarlega mikil menningarverðmæti gætu glatast ef eldur kæmi upp í húsi Menntaskólans í Reykjavík. Byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar segir brunavörnum í húsinu verulega ábótavant og að fara verði strax í aðgerðir til að bæta þar úr.

Hús Menntaskólans í Reykavík státar af langri og merkilegri sögu. Húsið var reist um miðja nítjándu öld og þar var meðal annars þjóðfundurinn haldinn árið 1851.

Stórbruninn í Lækjargötu á síðasta ári þar sem tvö gömul hús brunnu nánast til kaldra kola hefur vakið upp spurningar um brunavarnir í gömlum húsum. Á fundi slökkviliðsstjóra á Grand Hótel í gær kom meðal annars fram að mörg gömul hús í miðbæ Reykjavíkur eru með úreltar eða alls engar brunavarnir.

Magnús Sædal, byggingarfulltrúi í Reykjavík, segir að fjöldi merkilegra timburhúsa sé í borginni og þar gnæfi upp úr Menntaskólinn sem sé eiðsvöllur borgarinnar „og þar verður að fara í það að setja vatnsúðunarkerfi. Það er ekki spurning um að gera það. Þar eiga menn ekki að bíða eftir því að fara í endurbyggingu, menn eiga að gera þessar ráðstafanir strax," segir Magnús.

Aðspurður hvort húsið sé í hættu ef það kæmi upp eldur nú segir Magnús að það gæti orðið svakalegt „því þetta hús er allt saman fullt af holrýmum og menn gætu lent í gríðarlegum vanda að slökkva í því húsi," segir Magnús.

Undir þetta tekur Björn Karlsson brunamálastjóri en hann vinnur nú í samvinnu við borgaryfirvöld að heildarúttekt á brunavörnum í gömlum byggingum. „Ég held t.d. að hús eins og Menntaskólinn í Reykjavík sem er ómetanlegt hús hvað varðar menningarverðmæti það verður að fara að skoða svona hús," segi Björn og nefnir einnig Iðnó og önnur hús sem þjóðin vilji ekki missa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×