Forsetahjón hlupu í skarðið fyrir Jón Gnarr 17. nóvember 2010 13:30 Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussiaeff mæta á jólahátíð fatlaðra. Jón Gnarr svaraði ekki boðum aðstandenda hátíðarinnar.
André Bachmann, sem hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins fyrr á árinu, vonast eftir að um 1.500 manns mæti á jólahátíð fatlaðra sem verður haldin á Hilton-hótelinu 8. desember. Sérstakir gestir verða forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff. Þetta verður í annað sinn sem sérstakir gestir verða á hátíðinni, en erfiðlega hefur gengið að fá þá til að mæta. Sá fyrsti þáði boðið fyrir fimm árum, eða Magnús Stefánsson, þáverandi félagsmálaráðherra. „Mér þótti afskaplega vænt um það,“ segir André, sem reyndi fyrst að fá borgarstjórann Jón Gnarr til að koma í ár. Svo virðist sem André hafi þurft að fara aftast í röðina því margir hafa þurft að bíða lengi eftir því að ná sambandi við hinn eftirsótta Jón. „Ég beið eftir svari í fimm vikur en fékk engin svör. Þá sendi ég póst á forsetann klukkan 10 að morgni og hann svaraði upp úr klukkan 13,“ útskýrir hann. „Þetta fannst mér gott og ég er voða stoltur. Hann hefði gaman af að sjá mína skjólstæðinga skemmta sér af gleði. Þessi fallegu augu og bros. Þetta er svo einlægt fólk og þakklátt.“ Hljómsveitin The Charlies, Ingó Veðurguð, Bubbi og Raggi Bjarna verða á meðal flytjenda á jólahátíðinni, sem er nú haldin í 28. sinn.„Ég sendi Ölmu [Guðmundsdóttur] póst og fékk ægilega fallegt bréf til baka sem snart mig. Þetta eru afskaplega indælar stúlkur og þær hugsa fallega líka,“ segir André um stúlkurnar í The Charlies sem eru búsettar í Los Angeles. - fb
Mest lesið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Fleiri fréttir Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Sjá meira