Sælir sigurvegarar í Seljaskóla 17. nóvember 2010 10:00 Krakkarnir í Seljaskóla unnu Skrekk í fyrsta skipti á mánudagskvöldið. Stemningin í skólanum að morgni þriðjudags var því ansi góð. fréttablaðið/stefán „
Það er búið að vera ótrúlega gaman og allir eru í skýjunum,“ segir Sigrún Dís Hauksdóttir, formaður nemendafélags Seljaskóla, en skólinn bar sigur úr býtum í Skrekk á mánudagskvöldið. „Það voru allir svo ánægðir með sigurinn að það var gefið frí í fyrstu þremur tímunum í dag. Þegar við mættum svo í skólann, hlupum við sigurhring með styttuna og allir krakkarnir í yngri bekkjunum komu fram á gang að horfa,“ segir Sigrún, en Seljaskóli hefur aldrei unnið keppnina áður. Atriði Seljaskóla var virkilega flott og því hlýtur undirbúningurinn að hafa verið gríðarlegur. „Við æfðum í fimm vikur en við reyndum að byrja eins snemma og við gátum,“ segir Sigrún. „Við vorum með leikaraprufur, fimleikaprufur og söngprufur og utanaðkomandi aðilar aðstoðuðu við valið á hópnum. Svo saumuðum við alla búningana líka sjálf,“ segir Sigrún, en alls tóku 33 nemendur þátt. Sigrún fékk hugmyndina að atriði Seljaskóla en allir nemendurnir sem tóku þátt hjálpuðu til við að útfæra það. „Stephen Hawking sagði árið 2005 að við myndum útrýma heiminum með tækninni og í atriðinu erum við að sýna hvernig framtíðin gæti orðið með allri þessari tækni. En sama hvað gerist, að þá er alltaf von, og hún er okkar sterkasti eiginleiki,“ segir Sigrún. En var atriði Seljaskóla það flottasta á Skrekk í ár? „Alveg klárlega,“ segir Sigrún, glöð með sigurinn. - ka
Mest lesið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Fleiri fréttir Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Sjá meira