Slegið í gegn í Héðinsfjarðargöngum 21. mars 2008 18:45
Söguleg tímamót urðu nú undir kvöld þegar bormenn rufu einangrun Héðinsfjarðar þegar þeir sprengdu síðasta haftið í jarðgöngunum til Siglufjarðar. Héðinsfjarðargöng samanstanda af tveimur göngum sem annars vegar liggja frá Siglufirði yfir í Héðinsfjörð og hins vegar úr Héðinsfirði yfir í Ólafsfjörð. Samanlagt eru göngin um 11 kílómetrar að lengd og af því eru göngin milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar um 3,7 kílómetrar. Framkæmdum frá Siglufirði hefur miðað mjög vel og síðdegis í dag voru aðeins fimm metrar í að þau slái í gegn, það er að búið verði grafa göng frá Siglufirði til Héðinsfjarðar. Almenningi gefst þó ekki kostur á að fara um göngin alveg strax eða ekki fyrr en búið verður að styrkja bergvegginn og þétta. Héðinsfjarðargöng er stærsta verkefni sem Vegagerðin hefur boðið út til þessa. Framkvæmdin er liður í að bæta samgöngur, auka umferðaröryggi og tengja Siglufjörð við Eyjafjarðarsvæðið. Leiðin milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar mun styttast um 47 kílómetra en sveitarfélögin tvö sameinuðust árið 2006 og þar búa um 2200 manns. Samtals er búið að sprengja um 60 prósent af heildarlengd ganganna en verklok eru áætluð í desember á næsta ári . Ekki hefur gegnið eins vel að sprengja Ólafsfjarðarmegin vegna bergþéttinga. Þar er búið er að sprengja tæpa 2,7 kílómetra af þeim 6,9 sem göngin eiga að vera eða um 40 prósent. Ekki verður formlega haldið uppá það á morgun að búið sé að gera göng frá Siglufirði yfir Héðinsfjörð. Þó er gert ráð fyrir að starfsmennirnir á svæðinu haldi upp á áfangann með einhverjum hætti annað kvöld. Ráðherrum og öðrum gestum verður síðan boðið að skoða göngin eftir um það bil tvær vikur.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Sjá meira