Lífið

Góðgæti fyrir standandi gesti

Brynhildur Björnsdóttir skrifar
Marineruð kjúklingaspjót með kryddmajónesi.
Marineruð kjúklingaspjót með kryddmajónesi.

Snorri Victor Gylfason, yfirkokkur á Vox, gefur hér uppskriftir að nokkrum gómsætum fermingarréttum sem henta vel til að borða í veislum þar sem ekki er endilega sæti fyrir alla.

Það hentar ekki öllum að hafa sitjandi borðhald  og því geta fylgt ýmsir kostir að hafa gesti standandi í fermingarveislum. Þannig spjallar fólk meira saman og hópurinn blandast betur. Veitingarnar geta líka sem best verið sniðnar að þessu fyrirkomulagi, eins og til dæmis þessir dýrindis réttir sem Snorri hjá Vox hefur sett saman og gefur hér uppskriftir að. 

Arachini-bollurnar eru gómsætar með góðri pastasósu.

Arachini-bollur

400 g bygg

500 g kjúklingasoð

100 g rjómi

1 stk. skalottlaukur

1 stk. hvítlauksgeiri

1 dl hvítvin eða edik

200 g parmesan-ostur

200 g brauðraspur

100 g eggjarauður

100 g hveiti

Skolið byggið með köldu vatni. Hitið olíu í potti og steikið byggið þar til það er kominn smá litur á það. Bætið þá fínt söxuðum lauk og hvítlauk við og látið malla með. Hellið ediki eða víni yfir og sjóðið niður.

Bætið kjúklingasoði við í litlum skömmtum og látið sjóða niður á milli. Bætið við rjóma og sjóðið þar til byggottóið er orðið þykkt. Bætið fínrifnum parmesan saman við. Kælið byggið niður, gerið svo litlar kúlur og frystið.

Þegar á að bera fram kúlurnar er þeim fyrst velt upp úr hveiti, svo eggjarauðu og þar næst brauðraspi og endurtakið tvisvar sinnum. Djúpsteikið síðan á 180°C þar til þær eru gullinbrúnar.

Þessar bollur er gott að bera fram með pastasósu.

Þessi litlu rækjutakó eru einstaklega handhæg og bragðgóð í veisluna.

Mjúkt takó

250 g tígrisrækjur

100 g arabiata tómatsósa

100 g piparrót

100 g rauðlaukur sýrður í blöndu sem er 100 ml vatn, 100 g sykur og 100 ml edik

3 stk. vorlaukur 20 stk. lítil taco brauð

200 g hrásalat

Rífið piparrótina út í hrásalatið. Steikið rækjurnar og veltið upp úr tómatsósunni. Skerið rauðlaukinn í sneiðar og hellið ediksleginum yfir, látið bíða 15 mínútur. Skerið vorlaukinn smátt niður og raðið svo öllu saman í takóbrauðin. 



Kjúklingaspjót

Marinering

1 þumall ferskur engifer

200 ml sojasósa

2 geirar hvítlaukur

200 ml sushi-edik

25 g shiracha eða sambal

250 g kjúklingalæri (u.þ.b. þrír bitar úr hverju læri)

50 g sesamfræ

200 ml hotspot teriaki-sósa

50 g ferskur kóríander

150 ml kryddmajónes

Marinerið kjúklinginn í um 30 mín. og eldið hann þá í ofni við 250°C í 15-20 mín. Skerið lærin í þrennt, setjið á spjót og hellið sesamfræjum, teriaki og kóríander yfir. Berið fram með kryddmajónesi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×